Sigríður H. Kristjánsdóttir greindist með COVID-19 þann 8. mars. Hún var veik í fimm vikur og hefur glímt við mikil eftirköst síðan. Hún segir dvölina á Heilsustofnun í Hveragerði hafa haft gríðarlega jákvæð áhrif á líðan sína. Sigríður var svo ólánsöm að vera ein þeirra sem veiktust mjög alvarlega og var lögð inn á spítala.
Þorsteinn Hallgrímsson er einn af þeim sem hafa greinst með COVID-19 sjúkdóminn. Síðan þá hefur hann glímt við alvarleg eftirköst. Ég greindist í lok mars. Inga konan mín og 19 ára sonur okkar greindust á svipuðum tíma. Hann jafnaði sig fljótt og Inga hefur endurheimt um 80-90% af heilsu. Sjálfur var ég ekki svo heppinn.“ Einkenni Þorsteins voru ódæmigerð sem
Evrópsku heilsulindasamtökin, ESPA, héldu málþing í síðustu viku um endurhæfingu sjúklinga sem hafa fengið COVID-19. Fulltrúum frá Þýskalandi, Frakklandi, Slóvakíu og Íslandi var boðið að taka þátt og var Heilsustofnun með fulltrúa á málþinginu. Á málþinginu var lögð áhersla á að kynna hvernig náttúrulegar meðferðir, t.d. vatns- og leirmeðferðir, geti stutt við hefðbunda endurhæfingu gegn afleiðingum COVID-19 sjúkdómsins.
Á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði fá sjúklingar líkamlega og sálfélagslega endurhæfingu í dásamlegu umhverfi. Nú njóta þar endurhæfingar margir sem veiktust af COVID-19 í vetur og vor. „Sarfsemi Heilsustofnunar í dag er nær eingöngu læknisfræðileg endurhæfing,“ segir Birna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði.
Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði fagnar 65 ára afmæli á þessu ári. Framundan er mikil uppbygging með nýjum áskorunum. Þórir Haraldsson segir stofnunina byggja á þverfaglegri endurhæfingu en hann tók við stöðu forstjóra Heilsustofnunar í Hveragerði um síðustu mánaðamót. Gefin var út veglegur fjórblöðungur sem fylgdi Fréttablaðinu nú í vikunni. PDF af því eintaki má sækja hér.
Þórir Haraldsson hefur verið ráðinn í stöðu forstjóra Heilsustofnunar í Hveragerði frá 1. nóvember nk. Þórir er lögfræðingur frá Háskóla Íslands að mennt og hefur víðtæka þekkingu af heilbrigðisþjónustu og fyrirtækjarekstri. Hann hefur á undanförnum árum starfað hjá Íslenskri erfðagreiningu sem lögmaður og framkvæmdastjóri rekstrar. Hann var aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra 1995 – 2001 og hefur einnig setið í ýmsum stjórnum og
Heilsustofnun er lokuð almenningi vegna kórónuveirufaraldursins. Full endurhæfingarstarfsemi er á stofnuninni en aðeins færri í húsi en venja er. Enginn fær að koma inn á stofnunina sem verið hefur erlendis sl 14 daga, í návígi við sýktan einstakling eða með einkenni sem bent geta til COVID-19 og gildir það fyrir dvalargesti og starfsfólk. Stofnunin er alveg lokuð fyrir alla aðra
Glæsileg fyrirlestraveisla á netinu með 20 fyrirlestrum um heilsu og heilbrigðismál verður 31.október og 1.nóvember. Margrét Grímsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar mun í sínum fyrirlestri m.a. ræða helstu einkenni streitu, hvernig má þekkja hættumerkin svo hægt sé að grípa inn í og fyrirbyggja veikindi. Sjálf hefur Margrét reynslu af langvinnri streitu og í þessum persónulega fyrirlestri ræðir hún einnig áhrifaríkar leiðir til
Láttu þá sjá sagði Kristján Kristjánsson, faðir Jónasar Kristjánssonar læknis sem stofnaði Náttúrlækningafélag Íslands(1937) og Heilsuhælið í Hveragerði(1955) sem heitir Heilsustofnun NLFÍ í dag.
11. október 2022 Covid- 19 smitum hefur fækkað verulega í samfélaginu en engu að síður höfum við varann á hér á Heilsustofnun og biðjum fólk um að koma ekki hingað inn ef einhver flensu- eða önnur sýkingareinkenni eru til staðar. Vel er hugað að sótthreinsandi þrifum og sprittbrúsar eru víða um hús. Allir þurfa að huga vel að persónubundnum sóttvörnum,