Læknisfræðileg endurhæfing

– berum ábyrgð á eigin heilsu

Læknisfræðileg endurhæfing á Heilsustofnun

Meðferð í læknisfræðilegri endurhæfingu er að lágmarki fjórar vikur og er háð því skilyrði að læknir sendi inn beiðni fyrir dvöl.

Öll íhlutun sem miðar að því að draga úr skerðingu, fötlun og örorku af völdum sjúkdóma og slysa fellur undir læknisfræðilega endurhæfingu.
Með læknisfræðilegri endurhæfingu er átt við meðferðir þar sem saman fara félagslegar, læknisfræðilegar, sálfræðilegar og tæknilegar úrlausnir, sem miða að því að einstaklingurinn nái mestri mögulegri færni og lífsgæðum og viðhaldi þeim þegar hann snýr heim.

Mismunandi meðferðir eru í boði í endurhæfingu, eftir því hvað þarf að leggja áherslu á hjá viðkomandi einstaklingi.

Hér er hægt að skoða verðlista frá og sem gildir frá og með 1. janúar 2020

Allar frekari upplýsingar eru veittar af innlagnaritara í síma 483 0300. Símatími innlagnafulltrúa er alla virka daga frá kl. 10:00 til 12:00.

Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á tölvupósti á beidni@heilsustofnun.is

Hvað þarf ég að gera til að komast í læknisfræðilega endurhæfingu?

Hér getur þú skráð val á gistingu