Hlutverk Heilsustofnunar

að veita gestum alhliða heilsueflingu með því að veita andlega og líkamlega endurhæfingu
að kenna gestum að bera ábyrgð á eigin heilsu, andlegri og líkamlegri
að bæta færni og þátttöku gesta í daglegu lífi
að bjóða upp á heilsueflingu með hvíldar- og hressingardvöl
að nota nýjustu aðferðir í nútíma læknisfræði og tengja við náttúrulækningar „sem eru grundvöllur“ starfsins og bestu aðferðir hverju sinni í nútíma læknisfræði

Læknisfræðileg endurhæfing

Sérhæfð læknisfræðileg endurhæfing sem byggir á því að meðhöndla sjúkdóma og slys heildrænt. Hér fara saman félagslegar, læknisfræðilegar og sálfræðilegar úrlausnir sem miða að því að ná sem mestri mögulegri færni og lífsgæðum.

Nánari upplýsingar

Fræðsla og heilsuefling

Á Heilsustofnun eru fjölmargir fyrirlestrar og námskeið í boði fyrir gesti er varða endurhæfingu, heilbrigt líferni og aukin lífsgæði. Áhersla er lögð á að gestir fái góða fræðslu sem nýtist þeim áfram þegar snúið er heim eftir dvöl á Heilsustofnun.
Nánari upplýsingar

Almenn heilsudvöl

Forvarnir og heilsuefling er nauðsynleg fyrir andlega og líkamlega vellíðan. Í starfi Heilsustofnunar er lögð áhersla á að gestir nái sem bestri líðan bæði á líkama og sál. Heilsudvöl er í boði fyrir alla sem vilja bera ábyrgð á eigin heilsu.
Nánari upplýsingar

Fræðsla og þjónusta

Fræðsla, meðferðir og æfingar

Hvað þarf ég að gera til að komast í læknisfræðilega endurhæfingu?

Hér getur þú skráð val á gistingu

Fréttir af starfinu