Í þriðja sinn í röð varð Heilsustofnun efst í sínum flokki í kjöri á “Stofnun Ársins” – Flokkur sjálfseignarstofnana og fyrirtækja í almannaþjónustu. Niðurstöður voru kynntar þann 15. febrúar s.l. vettvangi Sameyki, stéttarfélags í almannaþjónustu, í kjölfar málþings um mannauðsmál þar sem yfirskriftin var “Velsæld á vinnustað” Í könnuninni eru þátttakendur spurðir út í níu þætti í starfsumhverfinu þ.e. trúverðugleika stjórnenda, starfsanda, launakjör,
Í desemberblaði Sjúkraliðans 2023 var skemmtilegt að sjá og lesa viðtal við Rannveigu Ingadóttur. Fáum að birta það hér með góðfúslegu leyfi. Myndir tók Dagný Dögg Steinþórsdóttir. Rannveig Ingvadóttir sjúkraliði býr í Hveragerði og starfar á Heilsustofnun. Hún segir að starfið sé mjög fjölbreytt og sjúkraliðar fái að njóta sín í allri sinni vinnu. Rannveig Ingvadóttir hefur starfað á Heilsustofnun NLFÍ í
Við vekjum athygli á sérstöku tilboðsverði á ævisögu Jónasar og einnig á nýrri uppskriftabók frá Heilsustofnun. Hægt er að panta með því að senda tölvupóst á netfangið heilsa@heilsustofnun.is og taka fram: Stofnuð verður innheimtukrafa í banka greiðanda og bækurnar svo sendar heim að dyrum þegar greiðslu er lokið Panta báðar bækurnar saman Hér að neðan er einnig hægt að kaupa bækurnar
Björn Rúnar Lúðvíksson prófessor í ónæmisfræðum og framkvæmdastjóri klínískrar rannsóknar- og stoðþjónustu hjá Landspítala hefur tekið sæti í aðalstjórn Heilsustofnunar. Björn Rúnar kemur inn í stjórn í stað Ingu Dóru Sigfúsdóttur og er þakkað fyrir hennar störf í þágu Heilsustofnunar. Auk Björns sitja í aðalstjórn, Gunnlaugur K. Jónsson forseti NLFÍ og Dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir deildarforseti sálfræðideildar HR.
Á morgun, þriðjudaginn 24. október hefur verið boðað kvennaverkfall þar sem mælst er til þess að konur og kynsegin fólk þessa lands leggi niður launuð og ólaunuð störf allan daginn og mótmæli sérstaklega vanmati á störfum kvenna, kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi gegn konum og kvárum. Ljóst er að margir vinnustaðir loka þennan dag eða verða með mjög takmarkaða starfsemi. Víða
Útgáfuhóf var haldið fimmtudaginn 28. september í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík í tilefni af útgáfu ævisögu Jónasar Kristjánssonar læknis Að deyja frá betri heimi. Það var margt um manninn og m.a. las Pálmi Jónasson rithöfundur bókarinnar upp úr bókinni. Pálmi áritaði einnig eintök af bókinni og Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur flutti tölu. Þess má geta að bókin er komi í sölu
Opna Heilsumótið 18. júní á Gufudalsvelli í Hveragerði – Hjóna/parakeppni fyrir 20 ára og eldri. Leikform: Betri bolti, punktar, betra punkta skorið á holu telur. Skráning hafin á Golfbox Verðlaun: Verðlaun: Heilsudvöl á Heilsustofnun fyrir tvo í fimm nætur Verðlaun: Heilsudvöl á Heilsustofnun fyrir tvo í tvær nætur Verðlaun: Heilsudvöl á Heilsustofnun fyrir tvo í tvær nætur
Öldrunarendurhæfing á Heilsustofnun NLFÍ Þekkt er að aldurssamsetning þjóðarinnar er að breytast og fer öldruðum fjölgandi og væntanlega mun þessi þróun halda áfram næstu árin og áratugi. Þótt margir eldist á heilbrigðan hátt þá komumst við ekki hjá aldurstengdum breytingum sem hafa mismikil áhrif á heilsuna okkar. Einnig fjölgar þeim sem eldast ekki eins og best verður á kosið.
Laus er 100% staða íþróttakennara við Heilsustofnun í Hveragerði. Fjölbreytt og skemmtilegt starf á góðum vinnustað. Hæfniskröfur: Kennsluréttindi Faglegur metnaður og frumkvæði Góð þjónustulund og færni í samskiptum Góð færni í íslensku
Í gær, 16. febrúar var tilkynnt á hátíð Sameykis að Heilsustofnun NLFÍ hlaut titilinn Stofnun ársins – sjálfseignastofnanir og fyrirtæki í almannaþjónustu. Könnunin byggir á mati starfsmanna og er um er að ræða mat á innra starfsumhverfi og starfsaðstöðu.