Fræðslunefnd NLFÍ efnir til málþings á Icelandair Hotel Reykjavík Natura, þingsalur 2, þriðjudaginn 8. nóvember 2022 kl. 19:30. Hvaða jákvæðu áhrif hafa köld böð á heilsufar? Eru köld böð áhættusöm og hvað ber að varast? Geta köld böð styrkt æðakerfið, minnkað bólgur og dregið úr streitu? Eru köld böð og sjósund fyrir alla ?
Námskeiði er lokið. Úrvinnsla áfalla með EMDR, listmeðferð og núvitund. Helgarnámskeið frá föstudegi til sunnudags með Rósu Richter, sálfræðing og listmeðferðarfræðing. Ert þú tilbúin/n að að bæta líðan þína og breyta skaðlegu hegðunarmynstri með því að skoða rót vandans, vinna úr áföllum og byggja upp nýja framtíðarsýn?
Á ársþingi ESPA – evrópsku heilsulindasamtakanna sem haldið var í Piestany í Slóvakíu, fimmtudaginn 22. september fékk Heilsustofnun afhent ESPA Innovation Award – nýsköpunarverðlaun samtakanna.
Hveragerðisbær og Þróunarfélag NLFÍ slhf. hafa samþykkt viljayfirlýsingu um að hefja viðræður með það að markmiði að ná samkomulagi um skipulagningu á svokölluðu Sólborgarsvæði sem liggur austan Varmár og að Þróunarfélagið fái heimild til uppbyggingar á landinu.
Nýverið kom út sjónvarpsþáttur á sjónvarpsstöðinni Hringbraut um uppbyggingu Lindarbrúnar. Hin þjóðþekkta fréttakona, Elín Hirst, kom á staðinn við fyrstu skóflustunguna 2. maí 2022. Hægt er að horfa á þáttinn með því að smella hér
Fyrsta skóflustungan að nýju íbúðahverfi við Lindarbrún í Hveragerði var tekin þann 2 maí sl. og verða byggðar 84 íbúðir í fimm klösum og er áætlað afraksturinn fari í að bæta aðstöðu Heilsustofnunar.
Heilsustofnun óskar eftir að ráða í sumar starfsfólk við aðstoð á hjúkrun, ræstingu og heilbrigðisgagnafræðing.
Í gær var tilkynnt að Heilsustofnun er stofnun ársins í könnun Sameykis. Heilsustofnun var efst í stærsta flokknum; Ríkisstofnanir og sjálfseignarstofnanir með 90 starfsmenn eða fleiri með 4,32 í einkunn. Þessi niðurstaða er afskaplega ánægjuleg fyrir okkur öll, – þetta er niðurstaða úr könnun meðal allra starfsmanna – þetta er ykkar sigur og mjög ánægjulegur fyrir okkur öll.
Náttúrulækningafélag Íslands hefur um árabil leitað leiða til að bæta húsakost Heilsustofnunar og skjóta styrkari stoðum undir rekstur hennar. Bygging íbúða á landi Heilsustofnunar fyrir einstaklinga sem vilja njóta öryggis og þjónustu Heilsustofnunar er einstakt tækifæri fyrir þá sem setja góða heilsu og vellíðan í öndvegi og mun einnig efla starfsemi Heilsustofnunar. Allur afrakstur af byggingu og sölu á íbúðum