Laus störf í sumar 2022 hjá Heilsustofnun

Heilsustofnun óskar eftir að ráða í sumar starfsfólk við aðstoð á hjúkrun, ræstingu og heilbrigðisgagnafræðing.

 

 

Aðstoð á hjúkrun

Í starfinu felst öll almenn aðstoð á hjúkrunarvakt. Unnið er á þrískiptum vöktum. Gott tækifæri fyrir sjúkraliða- og hjúkrunarnema, auk þeirra sem hafa áhuga á að kynnast fjölbreyttum störfum hjúkrunar á Heilsustofnun.

 

Ræsting

Leitað er að starfsfólki sem er jákvætt, þjónustulundað og sjálfstætt í vinnubrögðum. Vinnutími er 08:00-15:00 – vaktavinna. Umsóknarfrestur er til 6. maí.

 

Heilbrigðisgagnafræðingur óskast til starfa

Laus er til umsóknar 80% staða Heilbrigðisgagnafræðings við Heilsustofnun, önnur heilbrigðismenntun kemur einnig til greina. Starfið felst í innskráningum dvalargesta og læknaritun. Viðkomandi þarf að geta starfað sjálfstætt og hafa góða hæfni í samskiptum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

 

Nánari upplýsingar um störfin veitir Aldís Eyjólfsdóttir starfsmannastjóri

Umsóknir með ferilskrá sendist til starfsmannastjóra, aldis@heilsustofnun.is

 

Comments are closed.