Ritstjórn NLFÍ Hveragerði

3
nóv

Nýr stjórnarmaður hjá Heilsustofnun NLFÍ

Björn Rúnar Lúðvíksson prófessor í ónæmisfræðum og framkvæmdastjóri klínískrar rannsóknar- og stoðþjónustu hjá Landspítala hefur tekið sæti í aðalstjórn Heilsustofnunar. Björn Rúnar kemur inn í stjórn í stað Ingu Dóru Sigfúsdóttur og er þakkað fyrir hennar störf í þágu Heilsustofnunar. Auk Björns sitja í aðalstjórn, Gunnlaugur K. Jónsson forseti NLFÍ og Dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir deildarforseti sálfræðideildar HR.

23
okt

Þriðjudagur 24. október og boðað kvennaverkfall

Á morgun, þriðjudaginn 24. október hefur verið boðað kvennaverkfall þar sem mælst er til þess að konur og kynsegin fólk þessa lands leggi niður launuð og ólaunuð störf allan daginn og mótmæli sérstaklega vanmati á störfum kvenna, kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi gegn konum og kvárum. Ljóst er að margir vinnustaðir loka þennan dag eða verða með mjög takmarkaða starfsemi. Víða

Lesa meira

29
sep

Útgáfuhóf í tilefni útgáfu bókar um ævisögu Jónasar Kristjánssonar

Útgáfuhóf var haldið fimmtudaginn 28. september í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík í tilefni af útgáfu ævisögu Jónasar Kristjánssonar læknis Að deyja frá betri heimi. Það var margt um manninn og m.a. las Pálmi Jónasson rithöfundur bókarinnar upp úr bókinni. Pálmi áritaði einnig eintök af bókinni og Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur flutti tölu. Þess má geta að bókin er komi í sölu

Lesa meira

25
júl

Opna Heilsumótið 18. júní nk.

Opna Heilsumótið 18. júní á Gufudalsvelli í Hveragerði – Hjóna/parakeppni fyrir 20 ára og eldri. Leikform: Betri bolti, punktar, betra punkta skorið á holu telur. Skráning hafin á Golfbox Verðlaun: Verðlaun: Heilsudvöl á Heilsustofnun fyrir tvo í fimm nætur Verðlaun: Heilsudvöl á Heilsustofnun fyrir tvo í tvær nætur Verðlaun: Heilsudvöl á Heilsustofnun fyrir tvo í tvær nætur

13
jún

Betri heilsa – aukin lífsgæði

Öldrunarendurhæfing á Heilsustofnun NLFÍ Þekkt er að aldurssamsetning þjóðarinnar er að breytast og fer öldruðum fjölgandi og væntanlega mun þessi þróun halda áfram næstu árin og áratugi. Þótt margir eldist á heilbrigðan hátt þá komumst við ekki hjá aldurstengdum breytingum sem hafa mismikil áhrif á heilsuna okkar. Einnig fjölgar þeim sem eldast ekki eins og best verður á kosið.

23
maí

Starf íþróttakennara í boði

Laus er 100% staða íþróttakennara við Heilsustofnun í Hveragerði. Fjölbreytt og skemmtilegt starf á góðum vinnustað. Hæfniskröfur: Kennsluréttindi Faglegur metnaður og frumkvæði Góð þjónustulund og færni í samskiptum Góð færni í íslensku

17
feb

Heilsustofnun – Stofnun ársins 2022

Í gær, 16. febrúar var tilkynnt á hátíð Sameykis að Heilsustofnun NLFÍ hlaut titilinn Stofnun ársins – sjálfseignastofnanir og fyrirtæki í almannaþjónustu. Könnunin byggir á mati starfsmanna og er um er að ræða mat á innra starfsumhverfi og starfsaðstöðu.

10
feb

Sjúkraþjálfun og íþróttakennsla

Sjúkraþjálfarar á Heilsustofnun sinna bæði hópþjálfun og einstaklingsmeðferð dvalargesta sem þess þurfa. Einnig veita þeir fræðslu og vinna í teymum með öðrum meðferðaraðilum.   Áhersla er lögð á „virka“ meðferð þannig að sjúklingurinn verði meðvitaður um eigin þátt í meðferðinni og framhaldinu eftir að heim er komið.   Talsverður hluti meðferðar fer fram í hópum og sem dæmi um hópmeðferðir má nefna: 

Lesa meira

30
jan

Paradís sem gefur fólki nýtt líf

Þórunn Sveinbjoörnsdóttir ritar hér grein sem birtist á vefnum Lifðu núna Fólk kemur í straumum í Hveragerði til að vera á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins. Það var árið 1955 að framsýnn læknir Jónas Kristjánsson varð hvatamaður að stofnun Heilsustofnunarinnar. Kjarninn í hugmyndafræði hans var að efla heilbrigði, auka vellíðan og styrkja einstaklinginn í að bera ábyrgð á eigin heilsu og velferð. Þessi

Lesa meira

9
jan

Störf í boði

Almennar starfsumsóknir Almennar starfsumsóknir skal senda til Aldísar Eyjólfsdóttur starfsmannastjóra í netfangið aldis@heilsustofnun.is og einnig er hægt að hafa samband í síma 4830300 Einnig er tekið við umsóknum í bréfleiðis.  Utanáskrift umsókna er: Heilsustofnun NLFÍ b.t. starfsmannastjóra Grænumörk 10810 Hveragerði Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri, aldis@heilsustofnun.is   Heilsustofnun er ein stærsta endurhæfingarstofnun landsins og veitir
Lesa meira