Gjafabréf á Heilsustofnun er tilvalin gjöf til þeirra sem koma til hefðbundinnar dvalar, en einnig sem tækifærisgjöf við hin ýmsu tilefni. Hægt er að panta gjafabréfin hjá heilsa@heilsustofnun.is eða í síma 483-0300. Gjafabréf með upphæð að eigin vali – hentar t.d. fyrir þá sem koma til lengri dvalar.
27.3 2020 – Athugið að lokað er hjá Matstofu Jónasar næstu vikurnar Matsalurinn er opinn fyrir alla sem vilja heimsækja Heilsustofnun og gæða sér á heilsufæði. Gestir sem koma í mat eru beðnir um að hafa samband við starfsfólk við komu og láta vita af sér. Verð og opnunartími í matsalnum Morgunverður – 1.200 kr. Mán.-fös. kl. 07:30-09:30 Um helgar kl. 09:00-10:00 Hádegisverður – 2.400
Jónas Kristjánsson, læknir (1870-1960) var einn helsti hvatamaðurinn að stofnun Náttúrulækningafélags Íslands. Að hans frumkvæði tók Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði til starfa þann 24.júlí 1955. ÆVI OG STARF – FRUMKVÖÐULLINNJónas Kristjánsson, læknir, fæddist að Snæringsstöðum í Svínadal í Húnavatnssýslu þann 20. september 1870 og lést á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði þann 3. apríl 1960. Jónas varð fyrir þeirri miklu sorg
Félagið hefur frá stofnun unnið að fræðslu um manneldismál og heilbrigðismál. Frá árinu 1955 hefur félagið starfrækt Heilsustofnun í Hveragerði. Stofnun heilsuhælis var frá upphafi aðaláhugamál náttúrulækningamanna. Heilsuhælissjóður var stofnaður 19. mars 1944. Félagið keypti jörðina Gröf í Hrunamannahreppi fyrir væntanlegt heilsuhæli 20. nóvember 1946 og seldi þá um leið eignir sínar í Laugarási. Gröf var síðan seld þegar ákveðið
Á Heilsustofnun geta gestir komið á eigin vegum í heilsudvöl. Í þeim tilvikum er ekki þörf á að læknir sendi inn beiðni heldur velja gestir heilsudvöl sem þeim hentar. Heilsudvöl 1 – Gisting í eina nótt Gisting í eina nótt, ljúffengur og hollur matur, aðgangur að sundlaugum, baðhúsi og líkamsrækt. Fjölbreytt dagskrá er innifalin virka daga: Vatnsleikfimi, ganga, slökunartímar, leikfimi, jóga, núvitund
Ingi Þór Jónsson markaðsstjóri Heilsustofnunar NLFÍ, Margrét Jónasdóttir framkvæmdastjóri heimildarmynda hjá Sagafilm, Tinna Proppé framleiðandi hjá Sagafilm, Brynja Gunnarsdóttir stjórnarmaður NLFR, Björg Stefánsdóttir skrifstofustjóri NLFÍ við undirritun samningsins.