Fréttir

4
okt

HR og Heilsustofnun í samstarf um kennslu, starfsþjálfun og rannsóknir

Nemendur við Háskólann í Reykjavík munu njóta góðs af sérþekkingu starfsfólks Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands í námi, geta sótt þangað starfsþjálfun og stundað rannsóknir, samkvæmt nýjum samningi sem undirritaður var í dag af Ragnhildi Helgadóttur, rektor og Þóri Haraldssyni, forstjóra Heilsustofnunar NLFÍ. Samningurinn er til fimm ára og er markmið hans er að koma á og efla samstarf HR og Heilsustofnunarinnar

Lesa meira

9
sep

Árangursrík endurhæfing í Hveragerði

Föstudaginn 3. september 2021 birtist grein um árangursríka endurhæfingu á Heilsustofnun í Fréttablaðinu og viljum við því birta hana hér. Einstaklingsmiðuð endurhæfing og faglega viðurkenndir mælikvarðar einkenna starfsemi Heilsustofnunar. Þangað koma um 1.350 einstaklingar árlega. Á Heilsustofnun í Hveragerði koma um 1.350 einstaklingar á ári hverju í endurhæfingu og er dvalartími fjórar vikur. Beiðni frá lækni er skilyrði fyrir dvöl

Lesa meira

20
ágú

Starfsemin komin í gang eftir stutt hlé

Starfsemi Heilsustofnunar er komin af stað aftur eftir tveggja daga meðferðahlé á meðan unnið var að smitrakningu. Það verkefni gekk vel og endurhæfingarstarf hófst aftur fimmtudaginn 19. ágúst. 52 eru nú í sóttkví vegna þess. Tilkynning barst í morgun frá smitrakningateymi ríkislögreglustjóra um annað smit sem er óskylt hinu fyrra. Unnið er að smitrakningu en ekki er talin þörf á

Lesa meira

12
maí

Þrálátir stoðkerfisverkir – Ritgerð til doktorsgráðu eftir Sigrúnu Völu Björnsdóttur

Við birtum hér ágrip af afar áhugaverðri doktorsritgerð Sigrúnu Völu Björnsdóttur frá árinu 2017 sem fjallar um þráláta stoðkerfisverki. Þar fer hún um algengni, áhrif og þau þverfaglegu úrræði sem til eru hér á landi.  Við stiklum á inngangi og ágripi doktorsritgerðarinnar. Þrálátir stoðkerfisverkir – Ritgerð til doktorsgráðu eftir Sigrúnu Völu Björnsdóttur Algengi, áhrif og þverfræðileg úrræði á Íslandi Ágrip Inngangur

Lesa meira

9
mar

Laus störf í boði

Heilsustofnun er ein stærsta endurhæfingarstofnun landsins og veitir árlega 1350 einstaklingum endurhæfingarþjónustu skv. samningi við Sjúkratryggingar Íslands. Á Heilsustofnun fer fram einstaklingsmiðuð læknisfræðileg endurhæfing sem stjórnað er af þverfaglegum teymum. Áhersla er á að efla líkamlega, andlega og félagslega færni einstaklinga, auka lífsgæði og styrkja þá til athafna daglegs lífs. Helstu meðferðarsvið eru verkjameðferð, meðferð vegna streitu og kulnunar, offitumeðferð, geðendurhæfing,

Lesa meira

23
feb

Hollur matur úr nánasta umhverfi

Á Heilsustofnun hefur verið lífræn ræktun í nær hálfa öld. Halldór Steinsson er yfirmatreiðslumaður og hefur séð um eldhúsið í átta ár. Í matstofu Jónasar hefur alla tíð verið boðið upp á grænmetisfæði og veganrétti auk þess sem fiskur er tvo daga í viku. Lögð er áhersla á holla og góða rétti úr nærliggjandi umhverfi og Halldór segir að það

Lesa meira

9
feb

Greinilegur munur á fólki

Ólöf Waltersdóttir, deildarstjóri læknadeildar, segir það mikilvægt að skipta um umhverfi fyrir endurhæfingu. Ólöf hefur starfað á Heilsustofnun í 30 ár, þekkir starfsemina mjög vel og hittir alla dvalargesti. „Þegar ég byrjaði voru eldri dvalargestir í meirihluta, en meðalaldur hefur lækkað verulega á síðustu árum,“ segir Ólöf. „Samhliða því hafa meðferðirnar breyst og okkar frábæra fagfólk er duglegt að sníða þær

Lesa meira

16
jan

Allt meðferðarstarf verði á einum stað

Við birtum hér viðtal við forstjóra Heilsustofnunar, Þóri Haraldsson, þann 14. janúar sl. í Morgunblaðinu. Drög hafa verið lögð að byggingu nýrrar byggingar fyrir meðferðarstarf á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði og er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á næsta ári. Er nú unnið að þarfagreiningu og útfærslu á ýmsum hugmyndum sem fyrir liggja. Í dag er meðferðarstarfið, það er

Lesa meira

16
jan

Hugræn atferlismeðferð við svefnleysi

Talið er að um þriðjungur fullorðinna þjáist af svefnleysi einhvern tímann á ævinni og um tíu til fimmtán prósent þrói með sér langvarandi svefnleysi. Hugræn atferlismeðferð (HAM) er árangursrík meðferð við svefnleysi. Íris Sverrisdóttir, sálfræðingur hjá Heilsustofnun í Hveragerði,  segir að það þurfi rétta greiningu þegar kemur að svefnvanda. „Orsakir svefnleysis geta verið ýmsar og oft þarf að meðhöndla ákveðin svefnvandamál

Lesa meira

26
nóv

Náin tengsl við náttúruna er lykill að góðum árangri

Á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði fá sjúklingar líkamlega og sálfélagslega endurhæfingu í dásamlegu umhverfi. Nú njóta þar endurhæfingar margir sem veiktust af COVID-19 í vetur og vor. „Sarfsemi Heilsustofnunar í dag er nær eingöngu læknisfræðileg endurhæfing,“ segir Birna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Þangað sækja um 1.350 manns endurhæfingu á ári hverju samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands.

Lesa meira