Heilsustofnun er ein stærsta endurhæfingarstofnun landsins og veitir árlega 1350 einstaklingum endurhæfingarþjónustu skv. samningi við Sjúkratryggingar Íslands.
Á Heilsustofnun fer fram einstaklingsmiðuð læknisfræðileg endurhæfing sem stjórnað er af þverfaglegum teymum. Áhersla er á að efla líkamlega, andlega og félagslega færni einstaklinga, auka lífsgæði og styrkja þá til athafna daglegs lífs.
Helstu meðferðarsvið eru verkjameðferð, meðferð vegna streitu og kulnunar, offitumeðferð, geðendurhæfing, hjartaendurhæfing, öldrunarendurhæfing og endurhæfing eftir alvarleg veikindi, aðgerðir eða slys.
Störf í boði
Læknir
Óskum eftir að ráða endurhæfingarlækni eða annan sérfræðilækni sem hentar starfseminni vel svo sem heimilislækni, lyflækni, öldrunarlækni eða geðlækni.
Starfslýsing: Viðtal og skoðun nýrra sjúklinga og gerð meðferðaráætlunar, þverfagleg teymisvinna, tilfallandi læknisstörf og bakvaktir. Um framtíðarstarf er að ræða en sumarafleysing kemur einnig til greina.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Reynsla og áhugi á rannsóknarvinnu er kostur.
Starfshlutfall er eftir samkomulagi.
Sálfræðingur
Sálfræðingur óskast til starfa. Um framtíðar-starf er að ræða en sumarafleysing kemur einnig til greina. Starfið er fjölbreytt og felst í viðtölum við dvalargesti, að veita almenna fræðslu og leiða meðferðarhópa, auk þátttöku í þverfaglegum teymum.
Á síðustu árum hefur áhersla verið lögð á hvernig núvitund og samkennd nýtist í meðferðarstarfi.
Starfshlutfall er eftir samkomulagi.
Sjúkraþjálfari
Sjúkraþjálfari óskast til starfa í sumar. Starfið er fjölbreytt, auk hefðbundinnar sjúkraþjálfunar felur það í sér kennslu í hóptímum, fræðslu, útigöngur og þátttöku í þverfaglegu teymisstarfi.
Starfshlutfall er 100%
Íþróttakennari
Íþróttakennari óskast til starfa í sumar. Starfið er fjölbreytt, einstaklingsþjálfun og kennsla í hóptímum, s.s. vatnsleikfimi og leikfimi, fræðsla, göngur og þátttaka í þverfaglegu teymisstarfi.
Starfshlutfall er 50-80%
Hæfniskröfur
- Íslenskt starfsleyfi og góð íslenskukunnátta
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Reynsla af þverfaglegu meðferðarstarfi er kostur
- Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
Nánari upplýsingar veita:
G. Birna Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri lækninga – birna@heilsustofnun.is
Steina Ólafsdóttir deildarstjóri sjúkraþjálfunar – steina@heilsustofnun.is
Aldís Eyjólfsdóttir starfsmannastjóri – aldis@heilsustofnun.is s. 4830300
Comments are closed.








