Fréttir

22
nóv

Náin tengsl við náttúruna lykill að góðum árangri

Á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði fá sjúklingar líkamlega og sálfélagslega endurhæfingu í dásamlegu umhverfi. Nú njóta þar endurhæfingar margir sem veiktust af COVID-19 í vetur og vor. „Sarfsemi Heilsustofnunar í dag er nær eingöngu læknisfræðileg endurhæfing,“ segir Birna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Þangað sækja um 1.350 manns endurhæfingu á ári hverju samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands.

Lesa meira

12
nóv

Kynningarblað Fréttablaðsins um spennandi framtíðarsýn

Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði fagnar 65 ára afmæli á þessu ári. Framundan er mikil uppbygging með nýjum áskorunum. Þórir Haraldsson segir stofnunina byggja á þverfaglegri endurhæfingu en hann tók við stöðu forstjóra Heilsustofnunar í Hveragerði um síðustu mánaðamót. Gefin var út veglegur fjórblöðungur sem fylgdi Fréttablaðinu nú í vikunni. Blaðið má nálgast hér.

16
okt

Þórir Haraldsson ráðinn forstjóri Heilsustofnunar NLFÍ

Þórir Haraldsson hefur verið ráðinn í stöðu forstjóra Heilsustofnunar í Hveragerði frá 1. nóvember nk. Þórir er lögfræðingur frá Háskóla Íslands að mennt og hefur víðtæka þekkingu af heilbrigðisþjónustu og fyrirtækjarekstri. Hann hefur á undanförnum árum starfað hjá Íslenskri erfðagreiningu sem lögmaður og framkvæmdastjóri rekstrar. Hann var aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra 1995 – 2001 og hefur einnig setið í ýmsum stjórnum og

Lesa meira

16
okt

Lifum betur – Glæsileg fyrirlestraveisla á netinu

Glæsileg fyrirlestraveisla á netinu með 20 fyrirlestrum um heilsu og heilbrigðismál verður 31.október og 1.nóvember. Margrét Grímsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar mun í sínum fyrirlestri m.a. ræða helstu einkenni streitu, hvernig má þekkja hættumerkin svo hægt sé að grípa inn í og fyrirbyggja veikindi. Sjálf hefur Margrét reynslu af langvinnri streitu og í þessum persónulega fyrirlestri ræðir hún einnig áhrifaríkar leiðir til

Lesa meira

10
okt

Tillkynning um ráðstafanir vegna Covid 19 – 13. október 2020

Heilsustofnun er lokuð almenningi vegna kórónuveirufaraldursins. Full endurhæfingarstarfsemi er á stofnuninni en aðeins færri í húsi en venja er. Enginn fær að koma inn á stofnunina sem verið hefur erlendis sl 14 daga, í návígi við sýktan einstakling eða með einkenni sem bent geta til COVID-19 og gildir það fyrir dvalargesti og starfsfólk. Stofnunin er alveg lokuð fyrir alla aðra

Lesa meira

20
sep

150 ár frá fæðingu Jónasar Kristjánssonar

Láttu þá sjá sagði Kristján Kristjánsson, faðir Jónasar Kristjánssonar læknis sem stofnaði Náttúrlækningafélag Íslands(1937) og Heilsuhælið í Hveragerði(1955) sem heitir Heilsustofnun NLFÍ í dag. Í dag, 20. september 2020, eru 150 ár síðan Jónas Kristjánsson fæddist og við minnumst þess með virðingu og þakklæti. Á þessu ári eru einnig 65 ár frá því að Heilsuhælið/Heilsustofnun hóf starfsemi. stæðan fyrir þessum orðum er

Lesa meira

30
júl

Tilkynning um ráðstafanir vegna COVID-19

11. nóvember 2021                                                                                                                   

Lesa meira

21
júl

Óskum eftir hjúkrunarfræðingi

Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing til afleysinga frá 1. september í eitt ár. Um er að ræða í 85% starfshlutfall í vaktavinnu. Möguleiki er á starfsmannaíbúð á staðnum. Hæfniskröfur: Jákvætt viðhorf og góð samskiptahæfni Sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að vinna í teymi Íslenskt hjúkrunarleyfi Nánari upplýsingar gefur Margrét Grímsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar í netfangi: margretg@heilsustofnun.is

6
júl

Niðurstöður úr hugmyndasamkeppni birtar

Náttúrulækningafélag Íslands (NLFÍ) í samvinnu við Arkitektafélag Íslands efndi í janúar 2020 til opinnar hugmyndasamkeppni um enduruppbyggingu Heilsustofnunar NLFÍ og framtíðarskipulag á landi NLFÍ í Hveragerði. Alls bárust 11 tillögur í samkeppnina og voru niðurstöður kynntar 3. júlí 2020 í Hveragerði.​

2
júl

Hugmyndasamkeppni um framtíðaruppbyggingu á landi NLFÍ í Hveragerði

 – úrslit kynnt föstudaginn 3. júlí  kl. 15:00 Náttúrulækningafélag Íslands (NLFÍ) í samvinnu við Arkitektafélag Íslands (AÍ) efndi í janúar 2020  til opinnar hugmyndasamkeppni um enduruppbyggingu Heilsustofnunar (HNLFÍ) og framtíðarskipulag á landi NLFÍ í Hveragerði þar sem starfsemi Heilsustofnunar er rekin. Leitast var eftir tillögum að heildarskipulagi sem innifelur m.a. endurnýjun á núverandi húsnæði Heilsustofnunar í áföngum, að hluta til eða öllu leyti.

Lesa meira