Höfundur: Þorkell Guðbrandsson dr.med.
Sérgr. Lyflækningar og hjartalækningar.
Heilsuhæli NLFÍ í Hveragerði var stofnað 1955. Hin síðari ár hefur starfsemin farið fram í nafni Heilsustofnunar. Starfsemin hefur breyst og þróast í tímanna rás og er nútímaleg læknisfræðileg endurhæfing orðin undirstaða meðferðar.
Grundvöllur rekstrar er þjónustusamningur milli Heilsustofnunar og Sjúkratrygginga Íslands en einnig er rými fyrir hressingardvöl um lengri eða skemmri tíma án samnings við Sjúkratryggingar. Um 140 gistirými eru á stofnuninni.
Árlega koma um 1400 einstaklingar í endurhæfingu og er meðaldvalartími 4 vikur. Meðalaldur dvalargesta er um 65 ár.
Dvalargestir koma með beiðni frá lækni og fá meðferð á mismunandi meðferðarsviðum eftir því hvaða kvillar eru að angra þá. Þannig getur fólk verið að takast á við ýmsa líkamlega eða andlega kvilla.
Fólk með hjartasjúkdóma hefur fengið meðferð á Heilsustofnun í langan tíma og hin síðari ár hefur starfsfólk hjartateymis séð um meðferðina og fólk komið til meðferðar á svokallaða Hjartalínu. Meðferð á Hjartalínu hentar einstaklingum sem greinst hafa með hjartasjúkdóma eða áhættuþætti þeirra. Þar má nefna kransæðaþrengsli eða önnur æðaþrengsli, ástand eftir hjartaáfall og/eða skurðaðgerðir á hjarta eða kransæðum.
Markmið meðferðar er að auka líkamlegt þrek og færni, hindra framgang sjúkdóms, bæta svefn, bæta næringarástand, draga úr streitu eða stjórna henni, draga úr háþrýstingi, lækka blóðfitu og hætta reykingum, ef það á við.
Þjálfunaráætlun er sniðin að getu og þörfum hvers og eins og er þá gjarnan stuðst við niðurstöður áreynsluprófs. Læknir metur hvort þörf er á slíkri rannsókn. Þátttakendur stunda m.a. þrek- og styrktarþjálfun í tækjasal, þolgöngu utandyra, leikfimi, vatnsleikfimi og slökun. Öll þjálfun er undir eftirliti sjúkraþjálfara eða íþróttafræðings. Fylgst er með blóðþrýstingi, hjartsláttartíðni og súrefnismettun eftir þörfum meðan þjálfað er í tækjasal.
Margskonar fræðsla er í boði og er fræðslan skipulögð á stundaskrá.
Endurhæfing aldraðra hjartasjúklinga fer fram á vegum öldrunarteymis. Í upphafi dvalar eru framkvæmd líkamsfærnipróf, gert mat á byltuhættu og metin þörf fyrir sértæka meðferð. Meðferðaskrá er síðan sett upp í samráði við hvern dvalargest og miðuð við getu hvers og eins. Meðferð er ætíð undir eftirliti fagfólks.
Líkamsþjálfun er hornsteinn hjartaendurhæfingar og vitað er að hún getur dregið úr og/eða seinkað áhrifum ýmissa sjúkdóma og ellihrumleika. Áhrif þjálfunar eru afar víðtæk. Þau eru vel rannsökuð og vísindalega staðfest. Líkamsþjálfun hefur hagstæð áhrif á blóðfitu, blóðþrýsting, sykurþol, insúlínnæmi, blóðstorknun, holdafar, taugakerfi, andlega líðan og svefn. Einnig hafa nýlegar rannsóknir sýnt fram á stækkun á minnisstöðvum heilans og endurnýjun á heilafrumum. Þjálfun getur haft góð áhrif á jafnvægi, styrk vöðva og liðleika í liðum og getur gert beinin sterkari. Af þessari upptalningu má draga þá ályktun að lífsgæði geta aukist verulega við vel heppnað þjálfunarferli. Áhrif þjálfunar eru þó takmörkuð við tíma og til þess að viðhalda þeim þarf að halda áfram þjálfuninni þannig að í raun þarf að gera þjálfunina hluta af daglegu lífi.
Lengd endurhæfingarmeðferðar er að öllu jöfnu fjórar vikur. Að Hjartalínunni og endurhæfingu aldraðra hjartasjúklinga kemur hópur fagfólks sem vinnur saman að framkvæmd allrar meðferðar í náinni samvinnu við þátttakandann. Þetta eru læknir, hjúkrunarfræðingur, sjúkraþjálfari, íþróttafræðingur og sjúkraliði. Einnig eru kallaðir til aðrir fagaðilar eins og sjúkranuddari, næringarfræðingur og sálfræðingur þegar það á við. Minnisþjálfun getur verið í boði. Ýmis próf til að meta líkamsfærni eru einnig í boði t.d. tveggja mínútna göngupróf, 30 sekúndna STS-próf (seta til stöðu) og svokallað TUG-próf (tímamælt upp og gakk próf).
Á Heilsustofnun NLFÍ eru fjórar íbúðir, 86 eins manns herbergi og 32 tveggja manna herbergi. Góð aðstaða er í baðhúsi, inni- og útisundlaugar, gufuböð, leirböð, heitir og kaldir pottar og kneipp-böð. Þar eru nudd- og baðdeild, sjúkraþjálfunardeild, æfingasalir, fundasalir og ýmis meðferðarherbergi. Í matsal er boðið upp á sannkallað heilsufæði með úrvali af grænmetisréttum, fisk, súpur og salatbar. Í gróðurhúsum Heilsustofnunar er ræktað grænmeti sem er með lífræna vottun.
Á Heilsustofnun er lögð áhersla á meðferð í rólegu umhverfi og nálægð við náttúruna. Reynt er að styðja dvalargesti til að finna jafnvægi milli álags og hvíldar, öflug fræðslustarfsemi er til staðar og dvalargestir stunda hreyfingu við hæfi, huga að reglulegu og hollu mataræði, góðum svefnvenjum og andlegu jafnvægi.
Kjörorð Heilsustofnunar NLFÍ er: Berum ábyrgð á eigin heilsu.
Comments are closed.




