Fræðsla á Heilsustofnun – Hreyfing, æfingar og fræðsla Á Heilsustofnun fer fram mikil og öflug heilsuefling þar sem hópur fagfólks vinnur að því að efla heilsu dvalargesta í friðsælu umhverfi Heilustofnunar í Hveragerði.
Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur Heilsustofnunar fjallar um mikilvægi matarins til að stuðla að bættri líðan og betri heilsu.
Komdu þér fyrir framarlega á stólnum eða í þeirri stöðu sem hentar. Langan hrygg og slakar axlir. Hlustaðu á líkamann þinn og ef það eru einhverjar æfingar sem henta ekki þá má alltaf sleppa þeim og mundu að meira er ekki alltaf betra. Gangi þér vel.
Verkefni unnið af starfsfólki Heilsustofnunar í samvinnu við Kneipp-Verein Unna og PGA Oberösterreich. Kynningin er á myndbandsformi og er hægt að stoppa og spila að vild við lengri texta sem er á glærum.