Heil og sæl og gleðilegt ár. Ég var svo heppinn að fá dvöl hjá ykkur í 4 vikur, seinni hluta nóvember til jóla. Dvölin var frábær í alla staði. Líkamsræktin hjá frábærum íþróttafræðingum og sjúkraþjálfurum er bara í heimsklassa. Fyrirlestrar fagfólks ykkar um hina ýmsu þætti í lífinu, frá kvíða eða þunglyndi til mataræðis, skildi mikið eftir og ég er enn
Náttúrulækningafélag Íslands hefur um árabil leitað leiða til að bæta húsakost Heilsustofnunar og skjóta styrkari stoðum undir rekstur hennar. Bygging íbúða á landi Heilsustofnunar fyrir einstaklinga sem vilja njóta öryggis og þjónustu Heilsustofnunar er einstakt tækifæri fyrir þá sem setja góða heilsu og vellíðan í öndvegi og mun einnig efla starfsemi Heilsustofnunar. Allur afrakstur af byggingu og sölu á íbúðum