Heil og sæl og gleðilegt ár.

Ég var svo heppinn að fá dvöl hjá ykkur í 4 vikur, seinni hluta nóvember til jóla. Dvölin var frábær í alla staði. Líkamsræktin hjá frábærum íþróttafræðingum og sjúkraþjálfurum er bara í heimsklassa. Fyrirlestrar fagfólks ykkar um hina ýmsu þætti í lífinu, frá kvíða eða þunglyndi til mataræðis, skildi mikið eftir og ég er enn að meðtaka. Maturinn alveg frábær og óaðfinnanlegur svo og viðmót alls starfsfólksins. – Allt gert til að okkur þiggjendum/gestum liði sem best að öllu leyti.

Ég á eiginlega ekki orð yfir þakklæti mitt til ykkar og vona að ég fái annað tækifæri til að dvelja hjá ykkur. Ég óska ykkur öllum á Heilsustofnun gleði og hamingju á árinu og megi starfsemin eflast á komandi tímum.

Með mínum allra bestu kveðjum,

Hallgrímur Jónasson

Comments are closed.