Aðrir fræðslufyrirlestrar Beinþynning: Í fyrirlestrinum verður svarað spurningunni hvað er beinþynning? Fjallað um áhættuþætti beinþynningar og fyrirbyggjandi aðgerðir. Gott minni gulli betra: Fyrirlesturinn fjallar um skilgreiningu á minni, minnisstöðvar, mismunandi minni og mikilvægi minnisþjálfunar. Upphaf skipulagðar minnisþjálfunar og ekki síst nokkur góð ráð til að skerpa minnið.
Svefnfræðsla Fræðsluröð um svefn: Svefn – eðli svefns: Um eðli svefns, hvað stjórnar svefninum, svefnmunstur o.fl.Svefntruflanir: Um orsakir svefntruflana og mögulegar leiðir til úrbóta.Úrræði við svefnvandamálum. Um mismunandi úrræði vegna svefnvandamála.Svefn – draumar og martraðir: Um söguna sem draumarnir segja t.d í þunglyndi og hvernig breytingar á sögunni geta breytt líðan.
Streitufræðsla Fyrirlestraröð um hinar ýmsu hliðar streitu. Streituþol: Fjallað er um streitu sem eðlileg viðbrögð einstaklingsins við áreiti, á hvaða hátt langvinn streita getur komið niður á heilsu og vellíðan. Bent á leiðir til að nýta eðlileg streituviðbrögð til uppbyggingar og hvernig má takast á við langvinna streitu.
Húmor (skopskyn) Bráðskemmtilegur fyrirlestur um hvernig bæta má heilsuna og auka lífsgæðin með hjálp húmors. Á fyrirlestrinum eru ýmis sýnishorn af húmor, mismunandi tegundir og mörg spaugileg dæmi um hvernig nota ber húmor í daglega lífinu.
Fyrirlestrarröð um lífstílsbreytingar Gildi þjálfunar: Fjallað er um áhrif þjálfunar á líkamlega og andlega heilsu og gefnar ráðleggingar um hvernig hægt er að halda áfram þjálfun heima. Hvað þarf að gera mikið? Hvaða þjálfun hentar best? Góður lífsstíll alltaf: Fjallað er um mikilvægi þess að halda áfram að vinna að góðum lífsvenjum eftir að heim er komið. Hvernig hægt er
„Heilsustofnun bjargaði lífi mínu. Heilsan var komin í mikil óefni hjá mér og 6 vikna dvölin hér var mín lífsgjöf” Sigurjón Árnason
„Finnst ég endurnærð eftir dvölina. Lífsgæði mín hafa aukist til muna og ég hlakka til að nýta mér það sem ég lærði hérna í mínum daglegu athöfnum” Þórunn Sigurðardóttir
„Heilsustofnun er himnaríki á jörðu. Frábært starfsfólk og maturinn var æði. Kom endurnærð á sál og líkama frá ykkur. Takk fyrir mig. Ég mun sannarlega koma aftur og láta mitt fólk vita af því góða starfi sem hér er unnið.” Sigrún Jónsdóttir
Myndir af starfseminni á Heilsustofnun Á Heilsustofnun er oft líflegt um að litast og fjölbreytt starfsemi …… Myndir frá daglegu lífi og umhverfi á Heilsustofnun {loadposition allar_myndir}
Sérútbúið herbergi með góðum tækjum – Maggýjarherbergi Herbergið er við Langasand og er um 30 fm. Það er vel búið tækjum, í herberginu er sjúkrarúm, sérútbúið salerni og baðaðstaða. Fjarstýringar eru fyrir ljós og dyr. Sjónvarp og tölva er í herberginu og svefnsófi fyrir aðstandanda. Herbergið kallast Maggýjarherbergi til minningar um Magneu Karlsdóttur úr Hveragerði sem lést úr MND-sjúkdómnum. Það