dagsverk

30
mar

Páskadvöl – Dagskrá

Opin dagskrá fyrir dvalargesti Heilsustofnunar yfir páskana Miðvikudagur 1. apríl20:00 Kynning á Qi-Gong í Kapellu Fimmtudagur 2. apríl – skírdagur08:10  Vatnsleikfimi, létt08:50  Vatnsleikfimi, kröftug11:00  Ganga 2-313:00  Háls og herðar – Kapella17:30  Qi-Gong20:00 Kvöldvaka 

23
mar

Páskadvöl

Heilsustofnun býður sérstakt tilboð á styttri dvöl fyrir þá sem vilja hvíld og njóta lífsins í fallegu umhverfi. Innifalið í verði: Gisting, fullt fæði, aðgangur að líkamsræktarsal og baðhúsinu Kjarnalundi með inni- og útisundlaug, heitum pottum, nuddpotti, víxlböðum, sauna og vatnsgufubaði. Fjölbreytt dagskrá er innifalin yfir páskana: Vatnsleikfimi – Ganga – Slökun – Qi Gong – Leikfimi – Jóga o.fl.

18
mar

Kveðja frá formanni

Á afmælisárinu okkar þegar Hollvinasamtökin fagna 10 árum, stefnum við hátt og snúum bökum saman. Góður árangur hefur verið af starfi okkar og framlögum undanfarin ár.

18
mar

Aðalfundur 25. febrúar 2015

Aðalfundur Hollvina var haldinn á Heilsustofnun miðvikudaginn 25.febrúar kl. 20:00. Fundinn sátu 60 manns og farið var yfir hefðbundin aðalfundarstörf.  Í stjórn til næsta árs sitja; Ólafur Gränz, Róbert Hlöðversson Jóna Einarsdóttir, Oddný Mattadóttir Margrét Grímsdóttir. Einnig var samþykkt á fundinum að fá fleiri til starfa með stjórn í tilefni af 10 ára afmæli Hollvina.

18
mar

60 ára afmæli Heilsustofnunar

Heilsustofnun tók til starfa árið 1955 og verður haldið upp á 60 ára afmælið með ýmsum hætti á þessu ári.  Unnið er að útgáfu á blaði um Heilsustofnun sem verður dreift með Morgunblaðinu þann 14.maí nk. Haldið verður upp á afmælið sunnudaginn 28. júní nk. og eru Hollvinir beðnir um að taka daginn frá. Dagskrá verður kynnt síðar.

18
mar

Breytt fyrirkomulag varðandi árgjald Hollvina

Nú verður árgjaldið innheimt með greiðsluseðli sem sendur er á alla Hollvini. Vonast er til að þetta fyrirkomulag gefi góða raun og skili auknum tekjum í sjóð Hollvina.

18
mar

Upplýsingar og skráning

Unnið er að nýrri uppsetningu á félagatali og einnig er lögð áhersla á að safna saman netföngum allra Hollvina. Hollvinir eru beðnir um að senda uppfærðar upplýsingar til skráningar, einfaldast er að fara inn á heimasíðu Hollvina hollvinirhnlfi.is en einnig er hægt að senda tölvupóst beint á heilsa@heilsustofnun.is eða hringja í síma 4830300.

18
mar

Laus staða pípulagningameistara

Pípulagningameistari  óskast til starfa við HNLFÍ. Starfshlutfall er 100%, vinnutími er frá 8:00-16:00. Starfið felst í viðhaldi og eftirliti við pípulagnir ásamt öðrum tilfallandi verkefnum á stofnuninni.  Viðkomandi þarf að vera sjálfstæður í starfi og þjónustulipur,  kostur ef viðkomandi hefur meirapróf og/eða vinnuvélapróf.Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Ragnarsson umsjónarmaður fasteigna í s. 860 6520  Umsóknir berist til starfsmannastjóra fyrir 22.

Lesa meira

2
mar

Auglýsing – Skrá yfir störf sem undanþegin eru verkfallsheimild

Vegna boðaðra verkfalla hefur Heilsustofnun birt skrá yfir störf hjá Heilsustofnun NLFÍ, sem eru undanskilin verkfallsheimild Hér fyrir neðan er skrá yfir þau störf sem eru undanþegin verkfallsheimild skv. 2.mgr. 19. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna með síðari breytingum en falla undir töluliði 3-6, 1.mgr.

20
feb

300 milljón króna rannsóknastyrkur

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur Inga Dóra Sig­fús­dótt­ir, pró­fess­or við Há­skól­ann í Reykja­vík, hlotið rann­sókna­styrk frá Evr­ópu­sam­band­inu upp á 2 millj­ón­ir evra, sem nem­ur rúm­lega 300 millj­ón­um ís­lenskra króna, til þess að sinna þverfag­leg­um rann­sókn­um á áhrif­um streitu á líf barna og ung­linga. Þetta er frábær viðurkenning fyrir Ingu Dóru og hennar samstarfsmenn. Inga Dóra hefur und­an­far­in 20 ár sinnt rann­sókn­um

Lesa meira