Á afmælisárinu okkar þegar Hollvinasamtökin fagna 10 árum, stefnum við hátt og snúum bökum saman. Góður árangur hefur verið af starfi okkar og framlögum undanfarin ár. Ánægjulegt afmælisár er liðið og nú er að baki rúmlega tíu ára farsælt starf Hollvina (stofndagur er 24.júlí 2005). Af því tilefni munu allir Hollvinir fá sent með greiðsluseðli vegna árgjalda boðskort fyrir tvo í mat í
Aðalfundur Hollvina var haldinn á Heilsustofnun miðvikudaginn 16. mars kl. 20:00. Fundinn sátu 35 manns og farið var yfir hefðbundin aðalfundarstörf. Í stjórn til næsta árs sitja; · Ólafur Gränz,· Róbert Hlöðversson· Margrét Grímsdóttir· Þuríður G. Aradóttir· Valdimar Júlíusson· Þröstur Sigurðsson
Samkennd – að styrkja sig innan frá Námskeiði er lokið Compassionate mind training – Næsta námskeið verður haldið 13 – 20. mars 2016. Námskeiðið er fyrir þá sem vilja efl þann styrk sem býr innra með okkur öllum.Á námskeiðinu er tvinnað saman gjörhygli og samkennd, byggt er á þekkingu á því hvernig hugurinn hefur þróast og hvernig hann starfar. Þetta er
Nú líður að jólum og við vekjum athygli á því að sundlaugin verður lokuð fyrir almenning frá 18. desember til sunnudagsins 3. janúar 2016. Unnið er að lagfæringum í baðklefum og verða komin ný gólfefni á nýju ári! Heilsustofnun lokar kl. 16:00 miðvikudaginn 23. desember og opnar aftur sunnudaginn 3. janúar 2016. Starfsfólk óskar dvalargestum og velunnurum gleðilegra jóla og
Laugardaginn 28. nóvember verður haldinn þögull dagur og gefst öllum sem hafa komið á gjörhyglinámskeið (4 vikna og 8 vikna námskeið) tækifæri til að taka þátt þennan dag. Við byrjum klukkan 10.00 og endum kl 16.00. Dagurinn er þögull og þögnin byrjar þegar við komum í hús og verður rofin undir lok dagskrárinnar þar sem tími gefst til að ræða
Nú eru nokkur laus störf til umsóknar en um er að ræða stöðu deildarstjóra hjúkrunar og aðstoðarlæknir Deildarstjóri hjúkrunar er 80% starfshlutfall og staðan laus frá 1. janúar 2016 eða samkvæmt samkomulagi. Einnig er starf aðstoðarlæknis laus til umsóknar í 6-12 mánuði, starfshlutfall 100%. Nánari upplýsingar má finna hér.
Fræðslunefnd Náttúrulækningafélags Íslands efnir til málþings undir heitinu „Þarmar með sjarma!“ á Icelandair Hótel Reykjavík Natura, þingsal 1 þriðjudaginn 10. nóvember 2015 kl. 20:00 Reynt verður að svara eftirfarandi spurningum: Eru þarmar með sjarma? Er fæði frummannsins betra fyrir þarmana? Eru þarmar matvandir? Byrjar og endar heilsa okkar í þörmunum? Eru tengsl milli þarma og ADHD? Hefur sykurneysla áhrif á
Það eru mörg námskeið opin öllum í boði á Heilsustofnun. Má þar nefna lífsstílsnámskeiðið „Komdu með“, námskeið í samkennd, námskeið í gjörhygli og námskeið til að vinna úr sorg og ástvinamissi. Einnig nálgast jólin og viku heilsudvöl á Heilsustofnun er frábær leið til kúpla sig frá jólastressinu og hlaða batteríin.Nánari upplýsingar um námskeiðin og skráning hér
Heilsustofnun NLFÍ er þátttakandi í samevrópsku verkefni sem styrkt er af Evrópusambandinu og ber heitið ”Gesundheitsbildung durch Prävention” sem mundi útleggjast á íslensku; Heilsuefling með forvörnum. Þetta er samstarfsverkefni þriggja heilsustofnana í Evrópu; Heilsustofnunnar NLFÍ, Kneippsamtakanna í Unna í Þýskalandi og forvarnarstofnunarinnar PGA (Prophylaktische Gesundheits Arbeit) í Austurríki.
Í dag er afmælisdagur Jónasar Kristjánssonar læknis og frumkvöðuls, stofnanda Náttúrulækningafélags Íslands (1937) og Heilsustofnunar í Hveragerði (1955). Jónas Kristjánsson, læknir, fæddist að Snæringsstöðum í Svínadal 20. september 1870 og lést í Heilsuhæli NLFÍ í Hveragerði 3. apríl 1960. Hér má lesa nánar um ævi Jónasar. Ásamt því að fjölda greina eftir Jónas má finna á heimasíðu NLFÍ.