Fræðslunefnd Náttúrulækningafélags Íslands efnir til málþings undir heitinu „Þarmar með sjarma!“ á Icelandair Hótel Reykjavík Natura, þingsal 1 þriðjudaginn 10. nóvember 2015 kl. 20:00
Reynt verður að svara eftirfarandi spurningum:
- Eru þarmar með sjarma?
- Er fæði frummannsins betra fyrir þarmana?
- Eru þarmar matvandir?
- Byrjar og endar heilsa okkar í þörmunum?
- Eru tengsl milli þarma og ADHD?
- Hefur sykurneysla áhrif á þarma?
Dagskrá:
Frummaðurinn og nútíminn – Haraldur Erlendsson geðlæknir og forstjóri Heilsustofnunar NLFÍ.
Þarmar með sjarma – Rakel Fleckenstein Björnsdóttir þýðandi.
Þarmaflóran – okkar eigin hönnun – Birna G. Ásbjörnsdóttir MSc í næringarlæknisfræði og MSc nemi í gagnreyndum heilbrigðisvísindum.
Pallborðsumræður að loknum erindum
Fundarstjóri er Margrét Grímsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsustofnun NLFÍ.
Allir velkomnir – Aðgangseyrir 2.000 kr. – Frítt fyrir félagsmenn

Comments are closed.




