Fréttir og viðburðir

2
mar

Auglýsing – Skrá yfir störf sem undanþegin eru verkfallsheimild

Vegna boðaðra verkfalla hefur Heilsustofnun birt skrá yfir störf hjá Heilsustofnun NLFÍ, sem eru undanskilin verkfallsheimild Hér fyrir neðan er skrá yfir þau störf sem eru undanþegin verkfallsheimild skv. 2.mgr. 19. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna með síðari breytingum en falla undir töluliði 3-6, 1.mgr.

20
feb

300 milljón króna rannsóknastyrkur

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur Inga Dóra Sig­fús­dótt­ir, pró­fess­or við Há­skól­ann í Reykja­vík, hlotið rann­sókna­styrk frá Evr­ópu­sam­band­inu upp á 2 millj­ón­ir evra, sem nem­ur rúm­lega 300 millj­ón­um ís­lenskra króna, til þess að sinna þverfag­leg­um rann­sókn­um á áhrif­um streitu á líf barna og ung­linga. Þetta er frábær viðurkenning fyrir Ingu Dóru og hennar samstarfsmenn. Inga Dóra hefur und­an­far­in 20 ár sinnt rann­sókn­um

Lesa meira

18
feb

Hjúkrunarfræðinga og sjúkranuddara vantar til sumarafleysinga

Heilsustofnun auglýsir eftir hjúkrunarfræðingum og sjúkranuddurum til sumarafleysinga næstkomandi sumar.Nánari upplýsingar veitir Aldís Eyjólfsdóttir starfsmannastjóri í síma 483 0304 eða í gegnum netfangið aldis@hnlfi.is

9
feb

Gjöf frá ánægðum dvalargestum

Á dögunum færði Kristín Þorkelsdóttir myndlistarkona okkur þessa fallegu mynd sem ber heitið „“Á Fjallabaksleið – syðri Bláfjallakvísl”. Myndin var hengd var upp í Hollvinastofu á Heilsustofnun og kemur hún vel út þar. Ljósmyndin er eftir Hörð Daníelsson (www.gallery13.is) og er þakklætisvottur til okkar hér á Heilsustofnun fyrir góðar stundir og endurhæfingu á árunum 2013 og 2014 á heilsusetri HNLFÍ

Lesa meira

4
feb

Páskadvöl 2016 – njóttu lífsins

Páskadvöl 2016 – njóttu lífsins Páskadvöl er lokið Gildir frá 21. mars – 04. apríl 2016 Heilsustofnun býður sérstakt tilboð á styttri dvöl fyrir þá sem vilja hvílast og njóta lífsins í fallegu umhverfi nú um páskana. Innifalið í verði: Gisting, fullt fæði, aðgangur að líkamsræktarsal og baðhúsinu Kjarnalundi með inni- og útisundlaug, heitum pottum, nuddpotti, víxlböðum, sauna og vatnsgufubaði.

2
feb

Stólajóga – Nýjung á Heilsustofnun

Á morgun hefst á Heilsustofnun stólajóga fyrir þá sem geta ekki tekið þátt í venjulegu jóga. Þetta er mjúkt og milt form af jóga sem stundað er sitjandi í stól eða standandi.Margir geta ekki tekið þátt í hefðbundnum jógatímum vegna fötlunar, öldrunar eða ýmis konar andlegra eða líkamlegra veikinda. Oft er stólajóga valið fram yfir venjulegt jóga vegna erfiðleika við

Lesa meira

9
jan

Fyrirmyndarstjórnandi ársins 2014

Jákvæð, sanngjörn og virkjar sjúkraliða Sjúkraliðafélag Íslands hefur valið Margréti Grímsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, „Fyrirmyndarstjórnanda ársins 2014.“ Viðurkenningin var afhent við sérstaka athöfn á stofnuninni. Gunnar Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjúkraliðafélags Íslands, flutti ávarp og sagði frá vali félagsins, en þessi viðurkenning var veitt í fyrsta sinn í fyrra. Hann sagði það skipta öllu máli fyrir sjúkraliða

Lesa meira

1
des

Heilsusamleg gjafabréf

Gjafabréf á Heilsustofnun er góður kostur fyrir þá sem vilja styðja við sína nánustu sem koma til dvalar á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði til lengri eða skemmri tíma og hentar við öll tækifæri. Gjafabréf með upphæð að eigin vali og hægt að nýta sem innborgun fyrir dvöl í læknisfræðilega endurhæfingu, heilsudvöl, námskeið eða stakar meðferðir.

30
jún

Myndir frá afmælishátíðinni

Sunnudaginn 28. júní var haldin afmælishátíð í tilefni 60 ára afmæli Heilsustofnunar. Um 700 manns heimsóttu „Heilsuhælið“ og við skulum öll muna að við Berum ábyrgð á eigin heilsu.  Við þökkum öllum fyrir frábæran dag saman og smellum hér inn myndum sem teknar voru af tilefninu.

7
maí

Skaðsemi viðbætta sykurs

Heilsustofnun hefur lengi haldið fram skaðsemi viðbætta sykursins. Alltaf eru að koma fram betri sannanir fyrir skaðsemi sykursins. Er nú svo komið að stór hluti þeirra matvara sem við neytum er uppfullur af sykri.  Nýlega kom út bókin „Fat change“ eftir prófessor Robert Lustig en hann heldur því fram að sykur hinn mesti skaðvaldur í fæði okkar. Hann gengur mjög

Lesa meira