Aðalfundur haldinn í Hollvinasamtökum Heilsustofnunar NLFÍ, 20.mars 2019 kl:20:00. Björk Vilhelmsdóttir formaður setti fundinn.Ólafur Hjálmarsson var kosinn fundarstjóri og Björk Vilhelmsdóttir kosin ritari. Farið var yfir verkefni liðins árs og hafa Hollvinasamtökin stutt vel við bakið á Heilsustofnun með kaupum á ýmsum búnaði og húsgögnum. Stærstu styrkir ársins fóru í að kaupa líkamsgreiningartæki á um 1.600.000 kr. og áreynsluprófstæki
Aðalfundur var haldinn í Hollvinasamtökum Heilsustofnunar NLFÍ, 25. apríl. Farið var yfir verkefni liðins árs og hafa Hollvinasamtökin stutt vel við bakið á Heilsustofnun með kaupum á ýmsum búnaði og húsgögnum. Um 770 manns greiddu árgjald á síðasta ári og einnig komu fjárframlög frá einstaklingum og fyrirtækjum. Stjórn var kosin og er skipuð eftirfarandi fólki. Björk Vilhelmsdóttir, formaður Valdirmar Lárus
Aðalfundur var haldinn í Hollvinasamtökum Heilsustofnunar NLFÍ, 27. júlí sl. Þar lét Ólafur Gränz af embætti sem formaður Hollvinasamtakanna. Hann hafði verið formaður í 5 ár, verið ötull talsmaður Heilsustofnunar og náð góðum árangri í söfnum fjár til margvíslegra verkefna og hluta sem stutt hafa starf stofnunarinnar. Voru honum sérstaklega þökkuð góð störf.
Á afmælisárinu okkar þegar Hollvinasamtökin fagna 10 árum, stefnum við hátt og snúum bökum saman. Góður árangur hefur verið af starfi okkar og framlögum undanfarin ár. Ánægjulegt afmælisár er liðið og nú er að baki rúmlega tíu ára farsælt starf Hollvina (stofndagur er 24.júlí 2005). Af því tilefni munu allir Hollvinir fá sent með greiðsluseðli vegna árgjalda boðskort fyrir tvo í mat í
Aðalfundur Hollvina var haldinn á Heilsustofnun miðvikudaginn 16. mars kl. 20:00. Fundinn sátu 35 manns og farið var yfir hefðbundin aðalfundarstörf. Í stjórn til næsta árs sitja; · Ólafur Gränz,· Róbert Hlöðversson· Margrét Grímsdóttir· Þuríður G. Aradóttir· Valdimar Júlíusson· Þröstur Sigurðsson
Á afmælisárinu okkar þegar Hollvinasamtökin fagna 10 árum, stefnum við hátt og snúum bökum saman. Góður árangur hefur verið af starfi okkar og framlögum undanfarin ár.
Heilsustofnun tók til starfa árið 1955 og verður haldið upp á 60 ára afmælið með ýmsum hætti á þessu ári. Unnið er að útgáfu á blaði um Heilsustofnun sem verður dreift með Morgunblaðinu þann 14.maí nk. Haldið verður upp á afmælið sunnudaginn 28. júní nk. og eru Hollvinir beðnir um að taka daginn frá. Dagskrá verður kynnt síðar.
Aðalfundur Hollvina var haldinn á Heilsustofnun miðvikudaginn 25.febrúar kl. 20:00. Fundinn sátu 60 manns og farið var yfir hefðbundin aðalfundarstörf. Í stjórn til næsta árs sitja; Ólafur Gränz, Róbert Hlöðversson Jóna Einarsdóttir, Oddný Mattadóttir Margrét Grímsdóttir. Einnig var samþykkt á fundinum að fá fleiri til starfa með stjórn í tilefni af 10 ára afmæli Hollvina.
Nú verður árgjaldið innheimt með greiðsluseðli sem sendur er á alla Hollvini. Vonast er til að þetta fyrirkomulag gefi góða raun og skili auknum tekjum í sjóð Hollvina.
Unnið er að nýrri uppsetningu á félagatali og einnig er lögð áhersla á að safna saman netföngum allra Hollvina. Hollvinir eru beðnir um að senda uppfærðar upplýsingar til skráningar, einfaldast er að fara inn á heimasíðu Hollvina hollvinirhnlfi.is en einnig er hægt að senda tölvupóst beint á heilsa@heilsustofnun.is eða hringja í síma 4830300.