Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík, hlotið rannsóknastyrk frá Evrópusambandinu upp á 2 milljónir evra, sem nemur rúmlega 300 milljónum íslenskra króna, til þess að sinna þverfaglegum rannsóknum á áhrifum streitu á líf barna og unglinga. Þetta er frábær viðurkenning fyrir Ingu Dóru og hennar samstarfsmenn. Inga Dóra hefur undanfarin 20 ár sinnt rannsóknum
Heilsustofnun auglýsir eftir hjúkrunarfræðingum og sjúkranuddurum til sumarafleysinga næstkomandi sumar.Nánari upplýsingar veitir Aldís Eyjólfsdóttir starfsmannastjóri í síma 483 0304 eða í gegnum netfangið aldis@hnlfi.is
Aðalfundur Hollvinasamtaka Heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði verður haldinn á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði kl. 20.00 miðvikudaginn 25. febrúar. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Önnur mál Hvetjum hollvini og áhugasama um Heilsustofnunina til að mæta. Stjórnin Nánar um fundinn hér á Facebook síðu okkar.
Á dögunum færði Kristín Þorkelsdóttir myndlistarkona okkur þessa fallegu mynd sem ber heitið „“Á Fjallabaksleið – syðri Bláfjallakvísl”. Myndin var hengd var upp í Hollvinastofu á Heilsustofnun og kemur hún vel út þar. Ljósmyndin er eftir Hörð Daníelsson (www.gallery13.is) og er þakklætisvottur til okkar hér á Heilsustofnun fyrir góðar stundir og endurhæfingu á árunum 2013 og 2014 á heilsusetri HNLFÍ
Páskadvöl 2016 – njóttu lífsins Páskadvöl er lokið Gildir frá 21. mars – 04. apríl 2016 Heilsustofnun býður sérstakt tilboð á styttri dvöl fyrir þá sem vilja hvílast og njóta lífsins í fallegu umhverfi nú um páskana. Innifalið í verði: Gisting, fullt fæði, aðgangur að líkamsræktarsal og baðhúsinu Kjarnalundi með inni- og útisundlaug, heitum pottum, nuddpotti, víxlböðum, sauna og vatnsgufubaði.
Páskadvöl – njótum lífsins Gildir frá 29. mars – 12. apríl 2015 Heilsustofnun býður sérstakt tilboð á styttri dvöl fyrir þá sem vilja hvílast og njóta lífsins í fallegu umhverfi nú um páskana.
Á morgun hefst á Heilsustofnun stólajóga fyrir þá sem geta ekki tekið þátt í venjulegu jóga. Þetta er mjúkt og milt form af jóga sem stundað er sitjandi í stól eða standandi.Margir geta ekki tekið þátt í hefðbundnum jógatímum vegna fötlunar, öldrunar eða ýmis konar andlegra eða líkamlegra veikinda. Oft er stólajóga valið fram yfir venjulegt jóga vegna erfiðleika við