Fréttir og viðburðir

1
feb

Reynum að finna farveg þar sem fólk nýtur sín

Sjúkraþjálfun á Heilsustofnun er einstaklingsmiðuð. Ástand sjúklings er metið við komu og aftur við lok dvalar og áætlun gerð um framhaldið. Meðferð er alltaf ákveðin í samráði við sjúklinginn.

26
jan

Allt meðferðarstarf verði á einum stað

Við birtum hér viðtal við forstjóra Heilsustofnunar, Þóri Haraldsson, þann 14. janúar sl. í Morgunblaðinu. Drög hafa verið lögð að byggingu nýrrar byggingar fyrir meðferðarstarf á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði og er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á næsta ári. Er nú unnið að þarfagreiningu og útfærslu á ýmsum hugmyndum sem fyrir liggja. Í dag er meðferðarstarfið, það er

Lesa meira

14
jan

Breyting á streituhópnum

COVID hefur gjörbreytt hópnum sem glímir við streitu, fólk sem var í kulnun fékk hlé og aðrir lentu í vanda. Á Heilsustofnun fær þetta fólk að einblína á batann. Margrét Grímsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, segir mjög breiðan aldurshóp koma til dvalar á Heilsustofnun og að hópur dvalargesta sé sífellt að yngjast. Þangað komi fólk í endurhæfingu meðal annars vegna langvinnra verkja,

Lesa meira

13
jan

Hugræn atferlismeðferð við svefnleysi

Talið er að um þriðjungur fullorðinna þjáist af svefnleysi einhvern tímann á ævinni og um tíu til fimmtán prósent þrói með sér langvarandi svefnleysi. Hugræn atferlismeðferð (HAM) er árangursrík meðferð við svefnleysi.

12
jan

Lærði að forgangsraða og stjórna orkunni á nýjan hátt

Sigríður H. Kristjánsdóttir greindist með COVID-19 þann 8. mars. Hún var veik í fimm vikur og hefur glímt við mikil eftirköst síðan. Hún segir dvölina á Heilsustofnun í Hveragerði hafa haft gríðarlega jákvæð áhrif á líðan sína. Sigríður var svo ólánsöm að vera ein þeirra sem veiktust mjög alvarlega og var lögð inn á spítala.

11
jan

Ekki stórir sigrar, en samt sigrar

Þorsteinn Hallgrímsson er einn af þeim sem hafa greinst með COVID-19 sjúkdóminn. Síðan þá hefur hann glímt við alvarleg eftirköst. Ég greindist í lok mars. Inga konan mín og 19 ára sonur okkar greindust á svipuðum tíma. Hann jafnaði sig fljótt og Inga hefur endurheimt um 80-90% af heilsu. Sjálfur var ég ekki svo heppinn.“ Einkenni Þorsteins voru ódæmigerð sem

Lesa meira

21
des

Post-Covid – málþing á vegum ESPA

Evrópsku heilsulindasamtökin, ESPA, héldu málþing í síðustu viku um endurhæfingu sjúklinga sem hafa fengið COVID-19. Fulltrúum frá Þýskalandi, Frakklandi, Slóvakíu og Íslandi var boðið að taka þátt og var Heilsustofnun með fulltrúa á málþinginu. Á málþinginu var lögð áhersla á að kynna hvernig náttúrulegar meðferðir, t.d. vatns- og leirmeðferðir, geti stutt við hefðbunda endurhæfingu gegn afleiðingum COVID-19 sjúkdómsins.

26
nóv

Náin tengsl við náttúruna lykill að góðum árangri

Á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði fá sjúklingar líkamlega og sálfélagslega endurhæfingu í dásamlegu umhverfi. Nú njóta þar endurhæfingar margir sem veiktust af COVID-19 í vetur og vor. „Sarfsemi Heilsustofnunar í dag er nær eingöngu læknisfræðileg endurhæfing,“ segir Birna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði.

24
nóv

Kynningarblað Fréttablaðsins um spennandi framtíðarsýn

Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði fagnar 65 ára afmæli á þessu ári. Framundan er mikil uppbygging með nýjum áskorunum. Þórir Haraldsson segir stofnunina byggja á þverfaglegri endurhæfingu en hann tók við stöðu forstjóra Heilsustofnunar í Hveragerði um síðustu mánaðamót. Gefin var út veglegur fjórblöðungur sem fylgdi Fréttablaðinu nú í vikunni. PDF af því eintaki má sækja hér.

31
okt

Þórir Haraldsson ráðinn forstjóri Heilsustofnunar NLFÍ

Þórir Haraldsson hefur verið ráðinn í stöðu forstjóra Heilsustofnunar í Hveragerði frá 1. nóvember nk. Þórir er lögfræðingur frá Háskóla Íslands að mennt og hefur víðtæka þekkingu af heilbrigðisþjónustu og fyrirtækjarekstri. Hann hefur á undanförnum árum starfað hjá Íslenskri erfðagreiningu sem lögmaður og framkvæmdastjóri rekstrar. Hann var aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra 1995 – 2001 og hefur einnig setið í ýmsum stjórnum og

Lesa meira