Meðferð í læknisfræðilegri endurhæfingu er að lágmarki fjórar vikur og er háð því skilyrði að læknir sendi inn beiðni fyrir dvöl. Almennar ráðleggingar sóttvarnalæknis um handþvott, sprittun almennar sóttvarnir gilda. Þá munu heimsóknir til dvalargesta og heimferðir á dvalartíma verða takmarkaðar. Lokað er fyrir almenning. Þessar áherslur munu taka breytingum í takt við leiðbeiningar heilbrigðisyfirvalda. Athugið að fólk getur ekki
Náttúrulækningafélag Íslands (NLFÍ) í samvinnu við Arkitektafélag Íslands (AÍ) efnir til opinnar hugmyndasamkeppni um enduruppbyggingu Heilsustofnunar (HNLFÍ) og framtíðarskipulag á landi NLFÍ í Hveragerði þar sem starfsemi Heilsustofnunar er rekin, samkvæmt keppnislýsingu þessari og gildandi samkeppnisreglum AÍ.
1. nóvember 2019 Í dag var undirritaður samningur milli Náttúrulækningafélags Íslands og Sagafilm um gerð heimildarmyndar um Jónas Kristjánsson lækni, stofnanda Náttúrulækningafélags Íslands og síðar Heilsustofnunar í Hveragerði. Unnið hefur verið að undirbúningi myndarinnar um nokkurra ára skeið. Í heimildarmyndinni verða gerð skil á æviskeiði Jónasar, læknisstörfum á Héraði, þar sem hann hóf feril sinn, og í Skagafirði þar sem
Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur er kennari námskeiðsins sem er mjög fjölbreytt þar sem allir vinna saman. Það hefst með bragðkynningu á kryddtegundum með ostum.
Nokkur störf eru í boði um þessar mundir. Nánari upplýsingar um ofantalin störf veitir Aldís Eyjólfsdóttir starfsmannastjóri í síma 4830300 eða aldis@heilsustofnun.is Nánar má sjá þau hér
Bæjarhátíðin Blóm í bæ verður um helgina og Heilsustofnun verður með opið hús á morgun frá kl.14:00-15:30 allir velkomnir – Alma Möller landlæknir kemur í heimsókn og ávarpar gesti í Matstofu Jónasar.
Eydís Mary Jónsdóttir, land- og umhverfisfræðingur mun leiðbeina í ferðinni og, kenna áhugasömum að þekkja, tína og verka söl og annað fjörmeti. Hinrik Carl Ellertsson matreiðslumaður, landsliðskokkur og lífskúnstner mun einnig fræða okkur um hvernig er hægt að nýta sjávarþang og fleira.Þátttakendur þurfa að klæða sig eftir veðri, vera í vatnsheldum skóm, helst stígvélum, og hafa með sér poka til
Margrét Grímsdóttir er framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsustofnun NLFÍ. Þar er boðið upp á 4 vikna streitumeðferð sem Margrét stýrir. Hún segir aðsókn á þetta námskeið vera í stöðugri sókn, enda sé streita að aukast í samfélaginu með aukinni þenslu í hagkerfinu. Elínrós Líndal, blaðamaður tók við hana viðtal sem birtist þann 24. ágúst í sérblaði um heilsuna.
Halldór Steinsson yfirmatreiðslumaður hefur tekið saman tæplega 90 uppskriftir af ýmsum réttum, s.s. Borgarar og buff, Grænmetisréttir, Súpur, Hummus, Brauð og kex og margt fleira. Í bókinni er einnig ýmis fróðleikur. Bókin er seld á Heilsustofnun í Matstofu Jónasar en einnig er hægt að panta hana hér; https://www.salka.is/products/uppskriftir-heilsustofnunar
Fræðslunefnd Náttúrulækningafélags Íslands efnir til málþings á Icelandair Hotel Reykjavík Natura, þingsal 2, þriðjudaginn 13. mars 2018 kl. 20:00. Eru rafrettur skaðlegar heilsunni? Eru til ritrýndar rannsóknir um áhrif rafretta á heilsufar? Er reykur frá rafrettum skaðlaus? Hvað með reglugerðir um notkun rafretta? Eru rafrettur „æskilegri“ fyrir heilsuna en sígarettureykingar? Hvers vegna sækja unglingar/börn í rafrettur?