Hér má lesa grein eftir Bjarka Karlsson sem birtist í Morgunblaðinu 14. desember 2017 undir yfirskriftinni: Heilsuhagfræði fyrir nýja ráðamenn
Heilsustofnun í Hveragerði sigraði í sínum flokki “Innovative Health Spa Program” þegar nýsköpunarverðlaun ESPA, Evrópsku Heilsulindasamtakanna voru veitt við hátíðlega athöfn á aðalfundi samtakanna sem haldinn var í Róm 11. maí sl. Árlega eru veitt verðlaun til aðila innan samtakanna sem skara framúr og er þetta í þriðja sinn sem Heilsustofnun fær nýsköpunarverðlaun.
Við erum stolt af starfseminni hjá Heilsustofnun og fögnum því að vera í 5.sæti í Fyrirmyndarstofnun ársins 2017 Í flokki stærstu stofnana eru fimm fyrirmyndarstofnanir. Þær eru auk Reykjalundar, Ríkisskattstjóri (sem sigraði fyrir ári), Fjölbrautaskóli Suðurnesja (sem var í öðru sæti í fyrra), Vínbúðirnar (ÁTVR) (sem voru í fjórða sæti í fyrra) og Heilsustofnun NLFÍ (sem var í sjöunda sæti
Nemar í sjúkraþjálfun og íþróttafræði við University of Vermont dvöldu á Heilsustofnun í mars 2016. Á meðan á dvölinni stóð gerðu þau könnun á áhrifum þess að liggja í heitum vatnsböðum í 15 mín fyrir hreyfingu. Mæld voru áhrif á blóðþrýsting, púls og öndunartíðni sem og hreyfigetu. Niðurstöðurnar voru þær að eftir að legið í heitu vatni í 15 mínútur
Heilsustofnunin hefur alltaf verið framarlega í heilsufræðum en Jónas Kristjánsson, læknir og stofnandi félagsins, var einn sá fyrsti hérlendis til að vara við mikilli sykurneyslu og hlaut bágt fyrir enda langt á undan sinni samtíð. Blaðamaður mbl.is kom í heimsókn á páskadag og gerði matnum vel skil í skemmtlegri grein sem má sjá hér.
Þau Helga Björg Antonsdóttir, Hrönn Óskarsdóttir, Jón Ingi Björnsson, Sigrún Buithy Jónsdóttir og Tómas Gunnar Viðarsson eru í meistaranámi í Markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum við Háskóla Íslands. Eitt af verkefnum þeirra í námskeiðinu, Stefnumiðuð markaðsfærsla er að skoða ímynd Heilsustofnunar í Hveragerði og áhuga fólks á heilsudvöl og námskeiðum á Heilsustofnun. Vinsamlega smellið á þennan link til að taka þátt –
Sigrún Vala Björnsdóttir varði doktorsritgerð sína í lýðheilsuvísindum föstudaginn 3. febrúar 2017. Ritgerðin ber heitið: Þrálátir stoðkerfisverkir – Algengi, áhrif og þverfræðileg úrræði á Íslandi. Chronic Musculoskeletal Pain – Prevalence, impact and multidisciplinary treatment in Iceland. Andmælendur: dr. Dave Walton, dósent í sjúkraþjálfun við Western University í Kanada, og dr. Ragnheiður Harpa Arnardóttir, dósent við Háskólann á Akureyri.Umsjónarkennari og leiðbeinandi
Grasaferð í þágu Heilsustofnunar NLFÍ Fimmtudaginn 7. júlí n.k. verður farin grasaferð til að safna jurtum fyrir heilsute Heilsustofnunar. Grasaferðin verður í göngufæri við Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Leiðbeinandi er garðyrkjustjóri Heilsustofnunar, Jónas V. Grétarsson.
Námskeið fyrir bændur og annað áhugafólk um lífræna aðlögun, framleiðslureglur, leiðbeiningar, eftirlit, vottun, aðlögunarstuðning, vinnslu og markaðssetningu lífrænna afurða. Reykjavík, föstudaginn 6. maí 2016, kl. 11.00-16.00, Þarabakka 3 (3.h.), 109 Reykjavík (í Mjóddinni; næg bílastæði t.d. nærri Breiðholtskirkju). Námskeiðsgjald er kr. 20.000. Innifalið í námskeiðinu er prentað fræðsluefni, allar glærur og eintak af Reglum Túns um lífræna framleiðslu, auk veitinga.
Kæri félagsmaður, við vekjum athygli á heilsdagsráðstefnu í Eldborgarsal Hörpunnar og frábærum afslætti fyrir félagsmenn NLFR. Nánari upplýsingar og skráning er að finna á www.foodloose.is Við skráningu slærð þú einfaldlega inn kóðann #FL2016BHEALTHY Nánar um ráðstefnuna