Á Heilsustofnun hefur verið lífræn ræktun í nær hálfa öld. Öll ræktun sem fram fer á Heilsustofnun er lífræn og með vottun frá Vottunarstofunni Túni. Garðyrkjustöðin hefur verið lífræn frá upphafi. Fljótlega eftir að Heilsustofnun tók til starfa árið 1955 var byrjað að byggja upp stöðina. Hún er því ein elsta lífræna garðyrkjustöð landsins. Í garðyrkjustöðinni eru ræktaðar ýmsar tegundir
Á Heilsustofnun er hægt að kaupa 31. blaðsíðna uppskriftabækling með öllum þeim ljúffengu réttum sem eru á boðstólnum í matsalnum alla daga. Hér eru nokkur dæmi um hollar og góðar uppskriftir sem gaman að spreyta sig á heimavið: Cous cous salat með blómkáli og furuhnetum (fyrir 4-6)2 dl. heilhveiti cous-cous sett í skál með 2 dl. af sjóðandi grænmetissoðiPlastfilma sett yfir
Boðið er upp á hágæða heilsufæði á Heilsustofnun. Sérstök áhersla er lögð á grófmeti úr jurtaríkinu eins og til dæmis baunir, hýðishrísgrjón, ýmis konar heil korn og svo auðvitað grænmeti og ávexti. Fæðið inniheldur einnig egg og mjólkurvörur. Leitast við að nota eins lítið af salti, harðri fitu og sykri eins og mögulegt er. Það er stefna Heilsustofnunar að hafa sem
Hollvinasamtökin voru stofnuð á 50 ára afmæli Heilsustofnunnar þann 24. júlí 2005 í Hveragerði. Helstu markmið Hollvinasamtakanna Samtökin hafa það að leiðarljósi að styrkja starfsemi Heilsustofnunar eftir fremsta megni, fjárhagslega eða á annan hátt. Samtökin eru öllum opin sem áhuga hafa á starfsemi Heilsustofnunar og vilja standa vörð um framtíð hennar Samtökin vinna að því að efla samkennd um mikilvægi
Heilsustofnun NLFÍ tók til starfa í júlí árið 1955. Jónas Kristjánsson læknir, sem var einn af brautryðjendum náttúrulækningastefnunnar á Íslandi, hafði forystu um undirbúning og uppbyggingu Heilsuhælis NLFÍ, eins og stofnunin hét þá. Fljótlega eftir opnun 1955 var hægt að taka á móti 40 gestum, en starfsemi stofnunarinnar hefur aukist og húsakostur stækkað hægt og sígandi og nú koma meira
Þjónustusamningur var undirritaður milli Sjúkratrygginga Íslands og Heilsustofnunnar NLFÍ þann 1. apríl 2019. Samningurinn gildir til þriggja ára.
Hvað er í boði á Heilsustofnun?Heilsustofnun er opin öllum sem þurfa að efla líkamlegt og andlegt þrek og þol, hvort sem þeir koma samkvæmt tilvísun frá lækni eða ekki. Boðið er upp á tvo valkosti við dvöl á Heilsustofnun. Annars vegar Læknisfræðilega endurhæfingu og hins vegar heilsudagar. Hvað er læknisfræðileg endurhæfing?Læknisfræðileg endurhæfing er endurhæfingarmeðferð samkvæmt þjónustusamningi Heilsustofnunar við Sjúkratryggingar Íslands
Gjafabréf á Heilsustofnun er tilvalin gjöf til þeirra sem koma til hefðbundinnar dvalar, en einnig sem tækifærisgjöf við hin ýmsu tilefni. Hægt er að panta gjafabréfin hjá heilsa@heilsustofnun.is eða í síma 483-0300. Gjafabréf með upphæð að eigin vali – hentar t.d. fyrir þá sem koma til lengri dvalar.
27.3 2020 – Athugið að lokað er hjá Matstofu Jónasar næstu vikurnar Matsalurinn er opinn fyrir alla sem vilja heimsækja Heilsustofnun og gæða sér á heilsufæði. Gestir sem koma í mat eru beðnir um að hafa samband við starfsfólk við komu og láta vita af sér. Verð og opnunartími í matsalnum Morgunverður – 1.200 kr. Mán.-fös. kl. 07:30-09:30 Um helgar kl. 09:00-10:00 Hádegisverður – 2.400
Jónas Kristjánsson, læknir (1870-1960) var einn helsti hvatamaðurinn að stofnun Náttúrulækningafélags Íslands. Að hans frumkvæði tók Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði til starfa þann 24.júlí 1955. ÆVI OG STARF – FRUMKVÖÐULLINNJónas Kristjánsson, læknir, fæddist að Snæringsstöðum í Svínadal í Húnavatnssýslu þann 20. september 1870 og lést á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði þann 3. apríl 1960. Jónas varð fyrir þeirri miklu sorg