Meðferðin hentar þeim sem vilja öðlast betri heilsu og líðan og eru tilbúnir til að breyta lífsháttum sínum til langframa. Hún hentar þeim sem glíma við offitu og/eða fylgikvilla s.s. sykursýki. Hvert er markmið meðferðarinnar? Markmiðið er heilsuefling. Að efla andlega, líkamlega og félagslega heilsu og auka lífsgæði. Mikilvægt er að þátttakendur tileinki sér hollt og fjölbreytt mataræði, reglulegar máltíðir og hæfilegar
Meðferð í öldrunarendurhæfingu er fyrir eldri einstaklinga sem hafa andlegt og líkamlegt þrek til að taka þátt í virkri meðferð í hóp. Í hverju felst meðferðin?Í upphafi dvalar eru framkvæmd líkamsfærnipróf, gert mat á byltuhættu og metin þörf fyrir sértæka meðferð. Meðferðaskrá er sett upp í samráði við dvalargest og miðuð við getu hvers og eins. Líkamsþjálfun getur falist í
Meðferðin hentar einstaklingum með skerta færni í kjölfar bæklunaraðgerða, t.d. liðskiptaaðgerða. Hvert er markmið meðferðarinnar?Markmið meðferðarinnar er að auka líkamlega færni og þrek, draga úr verkjum og bæta andlega líðan. Einnig að auka hæfni til að lifa sem eðlilegustu lífi og auka lífsgæði. Veittur er stuðningur til varanlegra lífsstílsbreytinga og hvatning til sjálfshjálpar. Þjálfun Líkamsþjálfun sem sniðin er að þörfum hvers og eins
Meðferðin hentar þeim sem vilja öðlast aukinn styrk, betri heilsu og bætta líðan í kjölfar krabbameinsmeðferðar, eða á milli meðferða. Hvert er markmið meðferðarinnar?Markmið meðferðarinnar er að auka líkamlegan styrk, efla andlega, líkamlega og félagslega heilsu og auka lífsgæði. Unnið er að því að þátttakendur nýti sér hollt og fjölbreytt mataræði og reglulegar máltíðir. Að þeir finni þá leið sem best hentar
Meðferðin hentar einstaklingum með skerta færni og/eða lífsgæði vegna gigtarsjúkdóms. Boðið er upp á einstaklingsbundna gigtarendurhæfingu með fjölbreyttri hreyfingu, slökun og fræðslu um hollar neysluvenjur og heilbrigðan lífsstíl. Hvert er markmið meðferðarinnar?Markmið meðferðarinnar er að auka líkamlega færni og þrek, draga úr verkjum og bæta andlega líðan. Einnig að auka hæfni til að lifa sem eðlilegustu lífi og auka lífsgæði. Veittur
Meðferð í geðendurhæfingu hentar einstaklingum með þunglyndi og/eða kvíða, einnig einstaklingum sem glíma við lífskreppur eftir áföll svo sem skilnað, sjúkdóma, atvinnumissi, ástvinamissi, fjölskylduátök eða fjölskylduvandamál. Meðferðin gæti einnig hentað þeim sem þurfa aðstoð sem brú milli sjúkrahúsdvalar og heimferðar. Geðendurhæfing á Heilsustofnun leggur mikla áherslu á heilbrigðan lífsstíl, með hollu og góðu fæði. Áhersla er lögð á líkamlega þjálfun og
Þeir einstaklingar sem koma til endurhæfingar þurfa að hafa: Starfræna getu til að hjóla á þrekhjóli og fara í tæki Andlegt þrek til að tileinka sér tilsögn og fræðslu Hjarta-, æða- eða lungnasjúkdóm sem þarf að fylgjast með Löngun og vilja til að taka þátt Meðferðarskrá inniheldur m.a. eftirfarandi: Stöðuviðtal hjá hjúkrunarfræðingi/sjúkraliða Þrekþjálfun 3x í viku í tækjasal undir leiðsögn
Meðferðin hentar einstaklingum á vinnufærum aldri með langvarandi stoðkerfisverki, þar á meðal vefjagigt. Hún hentar fólki sem enn er á vinnumarkaði en einnig þeim sem eiga í erfiðleikum með að halda starfsþreki eða jafnvel hafa þurft að hætta á vinnumarkaði. Hvert er markmið meðferðarinnar? Markmiðið er að einstaklingurinn auki færni í sínum daglegu athöfnum og öðlist getu til að taka virkari þátt
Meðferðin hentar einstaklingum sem eru að glíma við það mikla streitu að það er farið að hafa hamlandi áhrif á andlega líðan, líf og störf einstaklinga. Streita er eitt hættulegasta mein nútímaþjóðfélags þar sem margir eru með alltof mörg verkefni og skyldur á sinni könnu, s.s. vinnu, fjölskyldu, vini, félagsstarf, heilsu og fjárhag. Því miður verður streitan stundum svo mikil