Heilsunudd er í raun gott fyrir alla, það er jafn mismunandi og þeir sem gefa það, engir tveir nuddarar vinna eins, en þeir eru samt sem áður að miðla þeirri kunnáttu sem hver og einn tileinkar sér út frá námi, tilfinninganæmi og auðvitað nuddþeganum. Heilsunuddi tilheyra ýmiss konar meðferðir eins og t.d.: Klassískt nudd Svæðanudd Triggerpunkta meðferð Heildrænt nudd Kinesiology
Það var í kringum 1930 að danskur meðferðaraðili, Dr. Vodder sem þá starfaði á frönsku Rivierunni, kynntist fólki sem var með sogæðavandamál. Hann fór að velta því fyrir sér hvort ekki væri hægt að nudda þetta fólk. Hann kláraði ekki þessa hugmynd sína. Árið 1963 kynntist þýskur læknir að nafni Dr. Asdonk frá Essen í Þýskalandi þessari hugmynd Dr. Vodder.
Sjúkranudd á Heilsustofnun er framkvæmt af löggiltum sjúkranuddurum. Meðferðarnudd sem boðið er upp á hjá Heilsustofnun hjálpar skjólstæðingum með víðtæk heilsufarsleg vandamál allt frá vöðvaspennu vegna streitu til alvarlegra veikinda s.s. bæklunar eða krabbameins. Nudd er einstaklingsmiðað og getur haft mjög jákvæð líkamleg jafnt sem andleg áhrif. Sjúkranuddarar taka þátt í þverfaglegri teymisvinnu á Heilsustofnun. Sjúkranudd hjálpar meðal annars við:
Einfaldar æfingar til að gera utandyra, upplagt eftir göngutúr eða útihlaup Hver æfing er endurtekin 10 sinnum eða eftir hentugl í 30 sek. Sýndar erur erfiðari og léttari útgáfur. Ein umferð af æfingum tekur um 5 mínútur. Gott er að gera 2-3 umferðir. Hver og einn velur sér tónlist sem honum finnst skemmtileg
Bakið er hannað fyrir hreyfingu. Hreyfing getur leyst úr læðingi náttúruleg efni sem draga úr verkjum. Mikilvægt er að hlusta á líkamann og ef það eru einhverjar æfingar sem henta ekki þá má alltaf sleppa þeim eða gera færri endurtekningar. Mundu að meira er ekki alltaf betra. Gangi þér vel.
Hver æfing er í 30 sek. Sýndar eru erfiðari og léttari útgáfur. Ein umferð af æfingum tekur um 5 mínútur. Gott er að gera 2-3 umferðir. Hver og einn velur sér tónlist sem honum finnst skemmtileg.
Hugleiðsla á Heilsustofnun Á síðustu árum hefur athygli vestrænna vísindamanna beinst að því hvernig fornar hugleiðsluaðferðir geta nýst okkur í daglegu lífi og hjálpað okkur að finna kyrrð innra með okkur og í framhaldi átt auðveldara með að fást við þá streitu og erfiðleika sem lífið leggur óhjákvæmilega á okkur.
Fyrirlestrarröð um lífstílsbreytingar Gildi þjálfunar: Fjallað er um áhrif þjálfunar á líkamlega og andlega heilsu og gefnar ráðleggingar um hvernig hægt er að halda áfram þjálfun heima. Hvað þarf að gera mikið? Hvaða þjálfun hentar best? Góður lífsstíll alltaf: Fjallað er um mikilvægi þess að halda áfram að vinna að góðum lífsvenjum eftir að heim er komið. Hvernig hægt er
Húmor (skopskyn) Bráðskemmtilegur fyrirlestur um hvernig bæta má heilsuna og auka lífsgæðin með hjálp húmors. Á fyrirlestrinum eru ýmis sýnishorn af húmor, mismunandi tegundir og mörg spaugileg dæmi um hvernig nota ber húmor í daglega lífinu.
Streitufræðsla Fyrirlestraröð um hinar ýmsu hliðar streitu. Streituþol: Fjallað er um streitu sem eðlileg viðbrögð einstaklingsins við áreiti, á hvaða hátt langvinn streita getur komið niður á heilsu og vellíðan. Bent á leiðir til að nýta eðlileg streituviðbrögð til uppbyggingar og hvernig má takast á við langvinna streitu.