Svefnfræðsla Fræðsluröð um svefn: Svefn – eðli svefns: Um eðli svefns, hvað stjórnar svefninum, svefnmunstur o.fl.Svefntruflanir: Um orsakir svefntruflana og mögulegar leiðir til úrbóta.Úrræði við svefnvandamálum. Um mismunandi úrræði vegna svefnvandamála.Svefn – draumar og martraðir: Um söguna sem draumarnir segja t.d í þunglyndi og hvernig breytingar á sögunni geta breytt líðan.
Aðrir fræðslufyrirlestrar Beinþynning: Í fyrirlestrinum verður svarað spurningunni hvað er beinþynning? Fjallað um áhættuþætti beinþynningar og fyrirbyggjandi aðgerðir. Gott minni gulli betra: Fyrirlesturinn fjallar um skilgreiningu á minni, minnisstöðvar, mismunandi minni og mikilvægi minnisþjálfunar. Upphaf skipulagðar minnisþjálfunar og ekki síst nokkur góð ráð til að skerpa minnið.
Heilsusamlegt mataræði Í fyrirlestrinum um Heilsusamlegt mataræði er fjallað um mat, máltíðir og innkaup sem stuðla að bættri líðan og betri heilsu. Einnig er rætt um ýmsar staðhæfingar og rangfærslur um mat og fæðubótarefni sem birtast almenningi reglulega.
Færni og heilsa Fræðslan um færni og heilsu er röð 12 fyrirlestra um hin ýmsu málefni er snúa að aukinni færni og bættri heilsu. Fyrirlestrar eru haldnir mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 10:00
Andleg líðan Fræðsluröð um andlega líðan ÞunglyndiÍ fyrirlestrinum er fjallað um staðreyndir um þunglyndi, rætt er um einkenni þunglyndis, hvers vegna við verðum þunglynd, þær meðferðarleiðir sem hafa gefist vel við þunglyndi og hvað við getum gert til að fyrirbyggja að við verðum þunglynd. KvíðiÍ fyrirlestrinum er fjallað um kenningar um kvíða, rætt er um einkenni, hvers vegna okkur hættir til