Myndsköpun Næsta námskeið – dagsetning í vinnslu Námskeið í myndsköpun er byggð á sálfræðikenningum C.G. Jungs. Leiðbeinandi er Gréta Berg hjúkrunarfræðingur og myndlistarkona. Námskeiðið er haldið á laugardegi frá kl.9-15 og sunnudegi frá kl.10-12 Verð fyrir dvalargesti er 8.000 kr. og verð fyrir utanaðkomandi er 16.000 kr. og með gistingu 20.000 kr.
Árangursmælingar Mat á meðferðAllir árangursmælikvarðar Heilsustofnunnar þjóna því markmiði að niðurstöður megi nota til þess að bæta meðferð þeirra sem til Heilsustofnunar leita. Þar að auki eru árangursmælikvarðar mikilvægur þáttur innan þjónustusamnings sem Heilsustofnun gerir við Sjúkratryggingar Íslands. Árangursmælikvarðar eru m.a. Heilsutengd lífsgæði Verkjamat Athafnir daglegs lífs Minnispróf Göngupróf Þrekpróf Liðmælingar Ummálsmælingar Blóðþrýstingsmælingar Fótaóeirðarmælingar Þunglyndis-, kvíða- og streitumat Byltu- og jafnvægismat
Þeir einstaklingar sem koma til endurhæfingar þurfa að hafa: starfræna getu til að hjóla á þrekhjóli og fara í tæki andlegt þrek til að tileinka sér tilsögn og fræðslu hjarta-, æða- eða lungnasjúkdóm sem þarf að fylgjast með löngun og vilja til að taka þátt
Krabbameinsendurhæfing Meðferðin hentar þeim sem vilja öðlast aukinn styrk, betri heilsu og bætta líðan í kjölfar krabbameinsmeðferðar, eða á milli meðferða.
Offitumeðferð Meðferðin hentar þeim sem vilja öðlast betri heilsu og líðan og eru tilbúnir til að breyta lífsháttum sínum til langframa. Hún hentar þeim sem glíma við offitu og/eða fylgikvilla s.s. sykursýki.
Verkjameðferð Meðferðin hentar einstaklingum á vinnufærum aldri með langvarandi stoðkerfisverki, þar á meðal vefjagigt. Hún hentar fólki sem enn er á vinnumarkaði en einnig þeim sem eiga í erfiðleikum með að halda starfsþreki eða jafnvel hafa þurft að hætta á vinnumarkaði. Hvert er markmið meðferðarinnar? Markmiðið er að einstaklingurinn auki færni í sínum daglegu athöfnum og öðlist getu til að taka virkari
Færni og heilsa Fræðslan um færni og heilsu er röð 12 fyrirlestra um hin ýmsu málefni er snúa að aukinni færni og bættri heilsu. Fyrirlestrar eru haldnir mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 10:00
Líf án streitu Námskeiði er lokið – dagsetningar fyrir haustnámskeið eru í vinnslu Námskeiðið Líf án streitu- lærðu að njóta lífsins – 7 daga heilsudvöl 11.-18. september 2016 Streita birtist í ýmsum myndum. Hún getur komið fram í líkamlegum einkennum, hugsun, hegðun og tilfinningalegum viðbrögðum.