Árangursmælingar Mat á meðferðAllir árangursmælikvarðar Heilsustofnunnar þjóna því markmiði að niðurstöður megi nota til þess að bæta meðferð þeirra sem til Heilsustofnunar leita. Þar að auki eru árangursmælikvarðar mikilvægur þáttur innan þjónustusamnings sem Heilsustofnun gerir við Sjúkratryggingar Íslands. Árangursmælikvarðar eru m.a. Heilsutengd lífsgæði Verkjamat Athafnir daglegs lífs Minnispróf Göngupróf Þrekpróf Liðmælingar Ummálsmælingar Blóðþrýstingsmælingar Fótaóeirðarmælingar Þunglyndis-, kvíða- og streitumat Byltu- og jafnvægismat
Læknisfræðileg endurhæfing HVERNIG ER SÓTT UM DVÖL Á HEILSUSTOFNUN VERÐLISTI FRÁ 1. MAÍ 2023 FYRIR ENDURHÆFINGARDVÖL Meðferð í læknisfræðilegri endurhæfingu er að lágmarki fjórar vikur og er háð því skilyrði að læknir sendi inn beiðni fyrir dvöl. Öll íhlutun sem miðar að því að draga úr skerðingu, fötlun og örorku af völdum sjúkdóma og slysa fellur undir læknisfræðilega endurhæfingu. Með
Krabbameinsendurhæfing Meðferðin hentar þeim sem vilja öðlast aukinn styrk, betri heilsu og bætta líðan í kjölfar krabbameinsmeðferðar, eða á milli meðferða.
Liðskiptaendurhæfing Meðferðin hentar einstaklingum með skerta færni í kjölfar bæklunaraðgerða, t.d. liðskiptaaðgerða.
Öldrunarendurhæfing Meðferð í öldrunarendurhæfingu er fyrir eldri einstaklinga sem hafa andlegt og líkamlegt þrek til að taka þátt í virkri meðferð í hóp.