Dagskrá og fræðsla Á Heilsustofnun eru ýmisleg námskeið og fræðsla í boði fyrir gesti og almenning er varða endurhæfingu, heilbrigt líferni og aukin lífsgæði. Áhersla er lögð á að gestir fái góða fræðslu sem nýtist þeim áfram þegar snúið er heim eftir dvöl á Heilsustofnun. Hér til hliðar má sjá yfirlit yfir þá fræðslu og námskeið sem boðið er uppá.
Árangursmælingar Mat á meðferðAllir árangursmælikvarðar Heilsustofnunnar þjóna því markmiði að niðurstöður megi nota til þess að bæta meðferð þeirra sem til Heilsustofnunar leita. Þar að auki eru árangursmælikvarðar mikilvægur þáttur innan þjónustusamnings sem Heilsustofnun gerir við Sjúkratryggingar Íslands. Árangursmælikvarðar eru m.a. Heilsutengd lífsgæði Verkjamat Athafnir daglegs lífs Minnispróf Göngupróf Þrekpróf Liðmælingar Ummálsmælingar Blóðþrýstingsmælingar Fótaóeirðarmælingar Þunglyndis-, kvíða- og streitumat Byltu- og jafnvægismat
Kjarninn í hugmyndafræði Heilsustofnunar NLFÍ er að efla heilbrigði, auka vellíðan og styrkja einstaklinginn í að bera ábyrgð á eigin heilsu. Heilsustofnun, sem er í eigu Náttúrulækningafélag Íslands, var stofnuð 1955. Upphaflega byggði lækninga-, og meðferðaform stofnunarinnar mikið á hefðum náttúrulækningastefnunnar. Síðustu áratugi hefur starfsemin á ýmsan hátt sveigt sig inn á braut hefðbundinna lækninga enda meirihluti starfsliðsins með hefðbundna
Líf án streitu Námskeiði er lokið – dagsetningar fyrir haustnámskeið eru í vinnslu Námskeiðið Líf án streitu- lærðu að njóta lífsins – 7 daga heilsudvöl 11.-18. september 2016 Streita birtist í ýmsum myndum. Hún getur komið fram í líkamlegum einkennum, hugsun, hegðun og tilfinningalegum viðbrögðum.
Færni og heilsa Fræðslan um færni og heilsu er röð 12 fyrirlestra um hin ýmsu málefni er snúa að aukinni færni og bættri heilsu. Fyrirlestrar eru haldnir mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 10:00