Myndsköpun Næsta námskeið – dagsetning í vinnslu Námskeið í myndsköpun er byggð á sálfræðikenningum C.G. Jungs. Leiðbeinandi er Gréta Berg hjúkrunarfræðingur og myndlistarkona. Námskeiðið er haldið á laugardegi frá kl.9-15 og sunnudegi frá kl.10-12 Verð fyrir dvalargesti er 8.000 kr. og verð fyrir utanaðkomandi er 16.000 kr. og með gistingu 20.000 kr.
Árangursmælingar Mat á meðferðAllir árangursmælikvarðar Heilsustofnunnar þjóna því markmiði að niðurstöður megi nota til þess að bæta meðferð þeirra sem til Heilsustofnunar leita. Þar að auki eru árangursmælikvarðar mikilvægur þáttur innan þjónustusamnings sem Heilsustofnun gerir við Sjúkratryggingar Íslands. Árangursmælikvarðar eru m.a. Heilsutengd lífsgæði Verkjamat Athafnir daglegs lífs Minnispróf Göngupróf Þrekpróf Liðmælingar Ummálsmælingar Blóðþrýstingsmælingar Fótaóeirðarmælingar Þunglyndis-, kvíða- og streitumat Byltu- og jafnvægismat
Geðendurhæfing Meðferð í geðendurhæfingu hentar einstaklingum með þunglyndi eða kvíða, einnig einstaklingum sem glíma við lífskreppur eftir áföll svo sem skilnað, sjúkdóma, atvinnumissi, ástvinamissi, fjölskylduátök eða fjölskylduvandamál. Meðferðin gæti einnig hentað þeim sem þurfa aðstoð sem brú milli sjúkrahúsdvalar og heimferðar.
Öldrunarendurhæfing Meðferð í öldrunarendurhæfingu er fyrir eldri einstaklinga sem hafa andlegt og líkamlegt þrek til að taka þátt í virkri meðferð í hóp.