Meðferðir

14
apr

Heilsunudd

Heilsunudd er í raun gott fyrir alla, það er jafn mismunandi og þeir sem gefa það,  engir tveir nuddarar vinna eins, en þeir eru samt sem áður að miðla þeirri kunnáttu sem hver og einn tileinkar sér út frá námi, tilfinninganæmi og auðvitað nuddþeganum. Heilsunuddi  tilheyra ýmiss konar meðferðir  eins og t.d.: Klassískt nudd Svæðanudd Triggerpunkta meðferð Heildrænt nudd Kinesiology

Lesa meira

14
apr

Sogæðameðferð

Það var í kringum 1930 að danskur meðferðaraðili, Dr. Vodder sem þá starfaði á frönsku Rivierunni, kynntist fólki sem var með sogæðavandamál.  Hann fór að velta því fyrir sér hvort ekki væri hægt að nudda þetta fólk.  Hann kláraði ekki þessa hugmynd sína.  Árið 1963 kynntist þýskur læknir að nafni Dr. Asdonk frá Essen í Þýskalandi þessari hugmynd Dr. Vodder. 

Lesa meira

14
apr

Sjúkranudd

Sjúkranudd á Heilsustofnun er framkvæmt af löggiltum sjúkranuddurum. Meðferðarnudd sem boðið er upp á hjá Heilsustofnun hjálpar skjólstæðingum með víðtæk heilsufarsleg vandamál allt frá vöðvaspennu vegna streitu til alvarlegra veikinda s.s. bæklunar eða krabbameins. Nudd er einstaklingsmiðað og getur haft mjög jákvæð líkamleg  jafnt sem andleg áhrif. Sjúkranuddarar  taka þátt í þverfaglegri  teymisvinnu á Heilsustofnun.  Sjúkranudd hjálpar meðal annars við:

Lesa meira

14
feb

Dagskrá um páskana

Opin dagskrá fyrir dvalargesti Heilsustofnunar yfir páskana 2022

16
jan

Núvitund – 8 vikur – 19.febrúar 2020

Núvitund – 8 vikur – 19.febrúar 2020 Næsta námskeið hefst 19. febrúar 2020  Þetta námskeið er ekki fyrir inniliggjandi dvalargesti. Námskeið í núvitund við verkjum, kvíða, þunglyndi og streitu. Námskeiðið tengir saman núvitund og hugræna atferlismeðferð. Unnið er í lokuðum hópum 12-16 einstaklinga. Kennt er í átta skipti, einu sinni í viku í tvo tíma í senn. Þátttakendur þurfa að

Lesa meira

15
okt

Heilsuhelgi með Geir Gunnari

Heilsuhelgi með Geir Gunnari Markússyni næringarfræðingi 29. nóvember – 1. desember eða 6.-8. desember- Námskeiði er lokið Hressandi en um leið afslappað námskeið í umhverfi Heilsustofnunar Frábært tækifæri til þess að njóta lífsins og setja heilsuna í forgang. Geir Gunnar mun kenna þátttakendum að: bera ábyrgð á eigin heilsu leggja áherslu á holla næringu og reglulegar máltíðir gæta að góðri meltingu

Lesa meira

12
ágú

Streita og kulnun

Tökum stjórnina – streita og kulnun Næsta námskeið er 22.-27.mars 2020 – þessu námskeiði er frestað 5 daga námskeið frá sunnudegi til föstudags Ertu að upplifa kulnun í lífi eða starfi? Er þráðurinn stuttur og neistinn farinn? Ertu með stöðuga kvíðatilfinningu? Langar þig að ná aftur tökum á eigin lífi? Þetta námskeið er fyrir einstaklinga semupplifa sig á barmi kulnunar

Lesa meira

12
feb

Aukið frelsi – aukin hamingja

Námskeiði er lokið.   Aukið frelsi – aukin hamingja 11.-13. nóvember  Sjá nánar hér https://www.heilsustofnun.is/heilsudvol/aukidh-frelsi-aukin-hamingja    

16
jan

Ritmennskunámskeið – 10.-13.apríl 2020

Ritmennskunámskeið – að skrifa sig úr skugganum í ljósið  þessu námskeiði er frestað 5 daga námskeið frá sunnudegi til föstudags Næsta námskeið er um páskana 2020, frá föstudegi til mánudags, 10.-13.apríl. Námskeið frá miðvikudegi til sunnudags, Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur leiðir þátttakendur í að losa sig frá erfiðum tilfinningum með skapandi skriflegri tjáningu.

12
sep

Myndsköpun

Myndsköpun Næsta námskeið – dagsetning í vinnslu Námskeið í myndsköpun er byggð á sálfræðikenningum C.G. Jungs. Leiðbeinandi er Gréta Berg hjúkrunarfræðingur og myndlistarkona. Námskeiðið er haldið á laugardegi frá kl.9-15 og sunnudegi frá kl.10-12 Verð fyrir dvalargesti er 8.000 kr. og verð fyrir utanaðkomandi er 16.000 kr. og með gistingu 20.000 kr.