Ritstjórn NLFÍ Hveragerði

21
júl

Óskum eftir hjúkrunarfræðingi

Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing til afleysinga frá 1. september í eitt ár. Um er að ræða í 85% starfshlutfall í vaktavinnu. Möguleiki er á starfsmannaíbúð á staðnum. Hæfniskröfur: Jákvætt viðhorf og góð samskiptahæfni Sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að vinna í teymi Íslenskt hjúkrunarleyfi Nánari upplýsingar gefur Margrét Grímsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar í netfangi: margretg@heilsustofnun.is

21
júl

Matseðill vikunnar

Matseðill vikunnar Sækja PDF af matseðli vikunnar þriðjudagur 5.marsPönnusteiktar fiskbollur með lauksmjöri kartöflum og grænmeti– Blaðlaukssúpa miðvikudagur 6. marsGrænmetislasagne með hvítlaukssósu– Sveppasúpa fimmtudagur 7. marsKjúklingabaunabollur með sveppasósu kartöflum og blönduðu grænmeti– Tómatsúpa föstudagur 8. marsPönnusteiktur steinbítur með gráðostasósu bökuðum kartöflum og blönduðu grænmeti– kúrbítsfennelsúpa laugardagur 9. marsFylltar paprikur með kíkertum og grænmeti steiktum eggjanúðlum og ristuðu brokkólî– Hýðisgrjónagrautur sunnudagur 10.

Lesa meira

6
júl

Niðurstöður úr hugmyndasamkeppni birtar

Náttúrulækningafélag Íslands (NLFÍ) í samvinnu við Arkitektafélag Íslands efndi í janúar 2020 til opinnar hugmyndasamkeppni um enduruppbyggingu Heilsustofnunar NLFÍ og framtíðarskipulag á landi NLFÍ í Hveragerði. Alls bárust 11 tillögur í samkeppnina og voru niðurstöður kynntar 3. júlí 2020 í Hveragerði.​

3
júl

Heilsan þín er allra hagur – berum ábyrgð

Það er margsannað að nudd, hitameðferðir, slökun og böð bæta jafnt líkamlegt sem og andlegt ástand. Þessar meðferðir ásamt fleirum eru í boði hjá Heilsustofnun. Til að fá sem mest út úr meðferðum er mjög gott að byrja á því að fara í heitan pott, gufu eða gera léttar æfingar í lauginni og öll þessi aðstaða er innifalin ef farið

Lesa meira

2
júl

Hugmyndasamkeppni um framtíðaruppbyggingu á landi NLFÍ í Hveragerði

 – úrslit kynnt föstudaginn 3. júlí  kl. 15:00 Náttúrulækningafélag Íslands (NLFÍ) í samvinnu við Arkitektafélag Íslands (AÍ) efndi í janúar 2020  til opinnar hugmyndasamkeppni um enduruppbyggingu Heilsustofnunar (HNLFÍ) og framtíðarskipulag á landi NLFÍ í Hveragerði þar sem starfsemi Heilsustofnunar er rekin. Leitast var eftir tillögum að heildarskipulagi sem innifelur m.a. endurnýjun á núverandi húsnæði Heilsustofnunar í áföngum, að hluta til eða öllu leyti.

Lesa meira

30
jún

Offitu- og efnaskiptameðferð

Meðferðin hentar þeim sem vilja öðlast betri heilsu og líðan og eru tilbúnir til að breyta lífsháttum sínum til langframa. Hún hentar þeim sem glíma við offitu og/eða fylgikvilla s.s. sykursýki. Hvert er markmið meðferðarinnar? Markmiðið er heilsuefling. Að efla andlega, líkamlega og félagslega heilsu og auka lífsgæði. Mikilvægt er að þátttakendur tileinki sér hollt og fjölbreytt mataræði, reglulegar máltíðir og hæfilegar

Lesa meira

18
jún

Hvíld, slökun og heilsuefling

Á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði geta gestir komið á eigin vegum í sannkallaða heilsudvöl. Í þeim tilvikum er ekki þörf á að læknir sendi inn beiðni. Gestir hringja þá sjálfir og panta í síma 483 0300 eða senda tölvupóst á beidni@heilsustofnun.is Ýmislegt er í boði fyrir gesti í heilsudvöl, hvort sem það eru stakar meðferðir eða þjónusta í baðhúsi, gestir raða

Lesa meira

18
jún

Öldrunarendurhæfing

Meðferð í öldrunarendurhæfingu er fyrir eldri einstaklinga sem hafa andlegt og líkamlegt þrek til að taka þátt í virkri meðferð í hóp. Í hverju felst meðferðin?Í upphafi dvalar eru framkvæmd líkamsfærnipróf, gert mat á byltuhættu og metin þörf fyrir sértæka meðferð. Meðferðaskrá er sett upp í samráði við dvalargest og miðuð við getu hvers og eins. Líkamsþjálfun getur falist í

Lesa meira

18
jún

Bæklunarendurhæfing

Meðferðin hentar einstaklingum með skerta færni í kjölfar bæklunaraðgerða, t.d. liðskiptaaðgerða. Hvert er markmið meðferðarinnar?Markmið meðferðarinnar er að auka líkamlega færni og þrek, draga úr verkjum og bæta andlega líðan. Einnig að auka hæfni til að lifa sem eðlilegustu lífi og auka lífsgæði. Veittur er stuðningur til varanlegra lífsstílsbreytinga og hvatning til sjálfshjálpar. Þjálfun Líkamsþjálfun sem sniðin er að þörfum hvers og eins

Lesa meira

18
jún

Krabbameinsendurhæfing

Meðferðin hentar þeim sem vilja öðlast aukinn styrk, betri heilsu og bætta líðan í kjölfar krabbameinsmeðferðar, eða á milli meðferða. Hvert er markmið meðferðarinnar?Markmið meðferðarinnar er að auka líkamlegan styrk, efla andlega, líkamlega og félagslega heilsu og auka lífsgæði. Unnið er að því að þátttakendur nýti sér hollt og fjölbreytt mataræði og reglulegar máltíðir. Að þeir finni þá leið sem best hentar

Lesa meira